laugardagur, júlí 28, 2007
Hæ. . .
![]() |
| Það er spurningin |
. . . . .eða hvað?
laugardagur, desember 16, 2006
One to go...
![]() |
| Kanninn og Íslendingurinn |
Þrír verkamenn voru að vinna á Kárahnjúkum við stíflugerð hátt uppi. Einn Ameríkani, einn Pólverji og einn Íslendingur. Þeir voru að ræða um þjóðir sínar og þá hendir kaninn búnti af seðlum fram af stíflunni og segir: Það er nóg af þessu í Ameríku! Þá tekur Pólverjinn kassa af Prins Póló úr vasanum, en svo vildi til að hann var að fá sendingu að heiman, og hendir kassanum fram af stíflunni og segir: Það er nóg af þessu í Póllandi skal ég segja ykkur! Þá tekur náttúrulega Íslendingurinn Pólverjan og hendir honum fram af stíflunni og segir: Það er sko nóg af þessu á Íslandi!
----------
Vissu þið að það eru fleiri en 17 þúsund flugvélar í heiminum, þar af eru fjögur þúsund á lofti hverju sinni?
þriðjudagur, nóvember 07, 2006
Listaspíran
![]() |
| Þetta er sannur listamaður |
Því næst er ofarlega frétt um atvik sem gerðist í Listaháskólanum: ,,Þá klæddu karlkyns nemendur konu úr öllum fötum. Þeir klipptu af henni hárið og skaphár. Síðan fóru með hana nakta út í port á baklóð skólans þar sem einn bekkjarfélaginn pissaði yfir hana." Listamennirnir ætluðu sér að endurspegla firringu í vísindasamfélaginu! Er þetta list?
Ég hef ákveðið að gerast listamaður. Á morgun klukkan 9:30 ætla ég að standa í kaffistofunni í Odda, í mislitum sokkum, rífa mig úr að ofan og pissa í buxurnar. Með því ætla ég að vígja mig inn í listamannastéttina og ég á von á frábærum móttökum. Þessi gjörningur minn á að tákna uppreisn við viðmið og gildi sem mér hefur verið skylt að fara eftir til að þrífast í mannlegu samfélagi. Það er list. Það er list af því að ég er aldrei í mislitum sokkum. Það er list af því að ég hef ekki strípiþörf. Það er list af því að mig langar ekki að pissa í mig. Það er list af því að ég get það. Það er list af því að ég mun hneigja mig þegar ég er búinn að því.
Er þetta uppreisn við þau viðmið og gildi sem að mér hafa verið fyrirfram gefin til að þrífast í mannlegu samfélagi? Eða er þetta list?
----------
Vissu þið. . . .
. . . .að það eru til fleiri en 500 þekktar tegundir af fælni? Ein sjalgæfust þeirra er Hoblofóbía - hræðsla við slökkviliðsbíla!




