۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

þriðjudagur, september 30, 2003

Þjóðhátíðarræða 2003

Sem nýstúdent Hveragerðisbæjar 2003 hélt ég ræðu við hátíðarhöld í Laugarskarði og hér er hún.

Ágætu þjóþhátíðargestir, gleðilega hátíð!

Um leið og við höldum afmælisdag lýðveldis okkar hátíðlegan minnumst við um leið þeirra tímamóta að sextíu ár eru liðin frá því að við öðluðumst þann þjóðlega rétt sem lýðveldið er. Í ár fögnum við Íslendingar því einnig að hundrað ár eru liðin frá því að framkvæmdarvald var flutt heim og segja má að leiðin hafið legið upp á við eftir það. Fullveldið fylgdi í kjölfarið og var það jafnframt grundvöllur þess að við fengum okkar sjálfstæðiskröfum fullnægt og slitum okkur endanlega frá frændum vorum Dönum eftir margra ára baráttu. Baráttu sem háð var af þeim þjóðhetjum okkar sem kröfðust þjóðlegs réttar og er það þess vegna sem við minnumst þeirra meðal annars hér í dag. Sú barátta hefur skilað sér til okkar og njótum við góðs af því í dag sem sérstök þjóð í okkar eigin landi. Sjálfstæð þjóð byggð á sterkum grunni fleytir okkur áfram inn í nútíman. Heimurinn minnkar í kjölfar tölvu- og alheimsvæðingar og við Íslendingar, á eyjunni litlu í norðri, færumst sífellt nær hinum stóra heimi. Það er jákvæð þróun og tökum við henni fagnandi og mætum henni full þjóðernisstolts.

Það eru ekki mörg ár síðan að börn okkar voru alin upp í torfkofum og fátækt ríkti hér á landi. Við þurfum ekki að leita langt til að finna manneskju sem hefur lifað þessa umbrotartíma og kann þá sögu þjóðar okkar. Sögu gríðarlegra breytinga og framþróunnar. Sú breyting sem á Íslandi hefur orðið frá einveldi til lýðræðis, frá fátækt til ríkidæmis og óréttlætis til jafnréttis er aðdáunnarverð og getum við verið stolt af þeirri þróun. Á þeim tíma sem við öðluðumst sjálfstæði voru það fyrst og fremst karlmenn sem mótuðu samfélag okkar en í kjölfar sjálfstæðis okkar jókst jafnrétti og hefur það gert það síðan. Við getum verið til dæmis stolt sagt frá því að hafa átt konu í borgarstjórastól og fyrstu konu í heimi til að verða forseti lýðræðis.

Þrátt fyrir að við séum álíka mörg hér á landi og í litlu þorpi í Bandaríkjunum höfum við átt fegurstu konur heims, tónlistarmenn á heimsmælikvarða, heimsþekkta rithöfunda og fengi nóbelsverðlaun svo við hreykjum okkur aðeins. Við eru lítil, kröftug og framúrskarandi þjóð og eigum að vera stolt af því.

Við Íslendingar búum við lýðræði, frelsi einstaklingsins skal haft í fyrirrúmi, við fæðumst jöfn og höfum sömu tækifæri. VIð fáum þá grunnmenntun sem við þurfum til þess að takast á við lífið og öll höfum við þann valkost að mennta okkur að vild. Menntun er máttur... og því er ungt fólk hvatt til menntunnar til þess að það fólk sem tekur við landinu geti leitt það áfram á sömu braut. Grundvallarregla Íslenska menntunarkerfisins er sú að allir eiga að hafa jafna möguleika til að afla sér menntunnar óháð kyni, fjárhagsstöðu, búsetu, trúarbrögðum, fötlun og menningarlegs eða félagslegsbakrunns. Á Íslandi eru átta háskólar í dag og eiga allir Íslenskir ríkisborgarar, sem stunda lánshæft nám, rétt á námslánum. Árlega sjáum við stóra hópa stúdenta útskrifast úr tugum framhaldsskóla víðsvegar af landinu. Til samanburðar má geta þess að árið 1944 voru aðeins tveir skólar sem útskrifuðu stúdenta og útskrifuðu þá um 120 nemendur af landinu öllu. Það má því segja að við séum komin landan veg á sjálfstæðisárunum okkar sextíu.

Góðir hátíðargestir, Íslendingar munu halda áfram að skara frammúr á komandi árum, við skulum öll vera stolt af því að vera hluti af þessari þjóð og sjá hvar við verðum stödd eftir önnur sjálfstæð sextíu ár.

Flutt 17. Júní 2003
Björn Ásgeir Björgvinsson

Ég var gagnrýndur af drukknum manni fyrir að vera þjóðernissynni, fyrir þessa ræðu, sem mér þykir ekki vera neitt til að skammast sín fyrir. Ég svaraði honum hins vegar á þann hátt að ég veit ekki til þess að afmælisræður af neinu tagi séu til annars gerðar en að heiðra þann eða það sem á afmæli og þar af leiðandi upphefja í tilefni dagsins. Því ákvað ég að gera það í þessari ræðu og vona að ég verði ekki dæmdur fyrir það.

--------------------------------------------------