þriðjudagur, október 26, 2004
Auglýsingar í dagblöðum
Það er ekkert smáræði sem menn eru að borga fyrir eina blaðsíðu í dagblöðum dagsins í dag. Í Fréttablaðinu kostar t.d. opna 547.200 krónur. Það er nú bara slatti fyrir sólahrings auglýsingu. Allt auglýsingarpláss á baksíðu sama blaðs kostar 422.100 krónur og hægri síðurnar í blaðinu kosta þetta:
Þessar tölur plús allt annað, þetta eru bara hæstu tölurnar og fara vel á þriðju millu samanlagt. Við erum að tala um hvern einasta dag vikunnar! Bara þessar tölur sem eru hér sinnum sjö er sautján og hálf milljón á viku og því sjötíu milljónir á mánuði. Tala nú ekki um ef að það er kannski fyrirtæki með fjórar síður, eins og Hagkaup er með í hverri viku nánast, þá er komin auka milljón og ein komma sex ef að það eru tólf blaðsíður. DV er reyndar mun lægri enda ekki eins margir lesendur. Held að Mogginn sé á svipuðu róli og Fréttablaðið. Ég komst þó ekki yfir upplýsingar frá þeim en ég fór í kynningu hjá þeim í framhaldsskóla og spurði þá kynningarstjórann að því hvað síða þrjú kostaði hjá þeim þ.e. dýrasta síðan. Það var tala sem var í kringum hálfa milljón þó ég muni ekki nákvæmlega hver hún var. Ekki nóg með það þá eru þessar síður pantaðar að staðaldri hálft ár fram í tíman og meira. Þeir eru reyndar að ná til nokkuð margra en mér þykir það stutt og lítils virði því fólk lítur á þetta og þær ná ekki einu sinni að fara inn og út hinum megin, svo langt ná þær ekki(ekki nema að það sé létt klæddur kvennmaður).
Auglýsing á eina síðu, í einn sólahring sem flestir varla líta á og henda áður en deginum líkur, kosta jafn mikið og ég þéna á einu sumri. Fyrir hálfa milljón myndi ég banka uppá hveju einasta húsi á Íslandi klæddur í Hagkaupsbæklingin og hafa gaman af því, og hvort ætli sé nú betri auglýsing?
Síða 3 - 428.600
|