۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

sunnudagur, október 24, 2004

Kommúnista leiðtogi fellur!

Höfðingi Havana og vindla féll í vikunni eftir að hafa haldið ræðu á útskriftarhátíð. Já hann féll bókstaflega þessi 78 ára kommúnista einvaldur sem hefur verið við völd í Kúbu í 45 ár. Hann var að ganga niður af sviðinu sem hann hélt ræðuna á og datt í neðstu tröppu, lenti á hné, olnboga og mjöðm. Hann hvorki meira né minna braut hnéskel og brákaði upphandlegg og því greinilega orðinn frekar brothættur kallinn. Hann segist þó ætla að halda ótrauður áfram jafnvel þótt hann verði settur í gifs. Fjölmiðlar velta því nú en meira fyrir sér núna hvort heilsa hans sé að bresta þar sem hann féll í yfirlið fyrir þremur árum við ræðuhöld. Einnig spyrja menn sig þá hvað gerist eftir Castro? Sumir segja að algjört svartnætti muni ríkja og sólin hætti að skína en aðrir segja kominn tíma og vilja framþróun.

Spurning hvort margra ára óhóflegar vindlareykingar séu að stíga leiðtoga Kúbu til höfuðs?


--------------------------------------------------