mánudagur, október 18, 2004
Stend við mín orð!
Já, þá er þetta á hreinu. Það er í lagi að skrifa um það núna þar sem að frúin er í loftinu og getur ekki farið á netið og nær ekki að sjá þetta áður en hún fær fréttirnar. En eins og ég sagði fyrir ungfrú suðurland við hana, ef hún ekki ynni myndi ég hætta með henni. Hún vann þar þrjá titla, vinsælust, annað sætið og eitthvað, og fékk þátttökurétt í ungfrú Ísland. Með það að leiðarljósi gaf ég henni séns. Ef hún ekki ynni ungfrú Ísland væri þetta búið. Hún vann ekki en varð í þriðja sæti. Hún grátbað mig og í ljósi þess að hún fékk þátttöku rétt í þriðju keppninni, miss International gaf ég henni síðasta sénsinn. Þrátt fyrir að ég hafi ekki verið sammála úrslitum síðustu keppni, frekar en þeim öllum, þá er ég maður minna orða og er því á leiðinni í Keflavík að ná í fyrrverandi konu mína. Hún veit það reyndar ekki ennþá en hún fær fréttirnar á eftir og má búast við því að hún maldi eitthvað í móinn. Ég get ekkert sagt annað en að ég hafi bara ákveðinn standard og sé ekki tilbúin að vera með þriðju fallegustu konu landsins, hvað þá vinsælustu eða eitthvað svoleiðis krap. Alla vega verð ég að lifa eftir því sem ég segi og svoleiðis er þetta bara.

