۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

sunnudagur, október 24, 2004

Yoko skaut lennon

Rakst á síðu áðan þar sem að birt eru textabrot frá þekktum listamönnum og hljómsveitum áfram og afturábak. Þar er einnig er hægt að hlusta á brotin. Margt áhugavert kemur greinilega fram í textum afturábak eins og t.d. í texta Britney Spears "Hit me babe" segir hún á einum stað "i´m not to young, sleep with me". Ég vissi alltaf að Britney væri mikill hugsuður en ég vissi ekki að hún væri svona rosalega klár. Freddy Mercury syngur "i´ts fun to smoke mariujana" í "Another one bites the dust" og Led Zeppilin er með bæn til satans í "Stairway to heaven". Veit ekki hvort maður á að kaupa þetta, hversu klár þarf maður að vera til að geta samið texta aftuábak án þess að hann sé bull áfram. Annars er þarna t.d. brot úr texta Pink Floyd sem að fær mann til að hugsa og trúa því að þeir hafi gert þetta meðvitað því textinn er svona "Congratulations. you have just discovered the secret message. Please send your answer to old pink care of the funny farm, Calfont." Og þetta er eins og þetta sagt áfram. Einnig eru Eminem, Lennon og Bítlarnir með klippu þarna. Yoko Ono segir í lagi sínu Kiss kiss kiss "i shot Lennon" og ég skil bara ekki afhverju ekki er búið að handtaka hana. Ég leyfi mér þó að efast um að menn geri þetta meðvitað, þetta er bara uppgötvanir einhverra manna sem hafa gjörsamlega ekkert annað að gera en að hlusta á tónlist allan daginn aftuábak. Þið getið þó dæmt um það sjálf kíkið á þetta......Hér

--------------------------------------------------