laugardagur, nóvember 20, 2004
Diego...
Ætlar að kíkja í sveitina í kvöld í fyrsta skiptið í á annað ár og er það vegna Þess að hann er orðin svokölluð miðbæjarrotta. Það verður því farið eitthvað út og haldið uppá þá dýrðlegu stund að myrkarhöfðinginn veitir manni þann heiður. Vorum að spá í að kíkja á rokktónleika í Ölfushöll og kíkja svo á eitthvað öldurhús á suðulandsundirlendinu. Það verður án efa ágætis afþreying og fyrir þá sem ekki vita hver Diego er þá er það strákur úr Hveragerði, áður þekktur sem Daði Óskarsson. Eftir þriggja ára háskólanám og mikinn tíma í 101 hefur hann orðið verulega sérvitur á margan hátt og hefur meðal annars skipt um nafn og hætt er hættur að svara öðru en Diego. Hann þykist ekki þekkja neinn, né hafa nokkurntíma þekkt nokkurn undir nafninu Daði. Hann er líka skeggjaður með eindæmum því hann er hættur að raka sig og lítur vægast sagt skuggalega út. En ég er vinur vina minna og loka ekki á hann þrátt fyrir þessa complexa hans.

