þriðjudagur, nóvember 30, 2004
Jólalag Nylon
Hvenær kemur jólalag Nylon? Ég er alveg pottþéttur á því að markaðsfræðingurinn mikli Einar Bárðar er búin að hugsa fyrir því að jólalag komi út með stelpunum hans nú fyrir jólin. Hann er nú þegar búin að gera Nylon föt, þátt, plötu og nú er verið að auglýsa Nylon bókina og hver veit hvað meira er komið undir þessu merki. Ég þori að veðja að innan skamms verður farin að hljóma óþolandi jólalag á útvarpsstöðum landsins með Nylon, örugglega eitthvað lag með Mariu Carey, Witney Huston eða eitthverri álíka sem er búið að gera Íslenskan texta við, jah eða bara einhver gullmoli frá Bárðarsyni sjálfum. Alla vega það kemur vitið til.
Ef það er nú þegar komið biðst ég afsökunnar.

