fimmtudagur, nóvember 04, 2004
Skemmtileg tilviljun
Að þegar ég útskrifaðist sem stúdent var faðir minn að útskrifast sem meistari í pípulögnum. Ekki nóg með það þá var raðað eftir stafrófsröð í sæti og því sátum við hlið við hlið. Þegar kallað var uppá svið gekk ég á eftir föður mínum að fá útskriftarplöggin. Svo stóðum við hlið við hlið við afhendinguna og meðan fólk tók myndir því það var jú raðað í Stafrófsröð.

