miðvikudagur, nóvember 24, 2004
Slím í haus
Hor og slím er það sem flæðir úr vitum mínum þessa stundina og ekki hægt að segja annað en að lyklaborðið sé orðið frekar kríslað. Ég fór að finna fyrir eymslum í hálsi í gær og hlóp þá inní eldhús og fékk mér tvöfaldan skammt af lýsi og öllum vítamínum sem ég fann. Ég var ekki nógu fljótur og svaf þar af leiðandi lítið. Fór samt í skólann en hlökklaðist heim þegar ég var búin að rennbleyta ermarnar á peysunni, og hárið á stelpunni fyrir framan mig, í slími. Rétt svo hélt haus á heimleið og kláraði eina klósettpappírsrúllu á meðan. Ég bara spyr hversu mikið slím getur komið úr einum haus???

