۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

þriðjudagur, nóvember 02, 2004

Taka sturtu

Við erum alltaf að verða meira og meira smituð af enska málinu ég hef t.d. gómað sjálfan mig í að segja ,,ég ætla að taka sturtu", sem er að sjálfsögðu komið úr enskunni af ,,take a shower" og stundum segi ég ,,ég er að taka til", það er kannski eðlilegt;). En það sem mér finnst merkilegt í sambandi við það að nú er stöð tvö í með auglýsingar sem segja ,,stöð tvö fer digital". Þetta er kannski vitleysa í mér en þetta er hálf þýtt og hálf vitlaust. Digital þýðir stafrænt eða tölfustafa-, eins og í digital watch. Í staðinn fyrir að segja ,,stöð tvö verður stafrænt" þá kjósa þeir að vera nýrri kynslóð hliðhollir og tala þeirra máli. Ættu þeir samt ekki að vera fyrirmyndin og stuðla að því að viðhalda málinu þar sem að það á nú yfirleitt alltaf meira og meira undir högg að sækja þessa síðustu og verstu tíma. Fólk er farið að stytta orð í sms-um og á msn-i til þess að koma meiru fyrir og vera fljótari og það smitast ósjálfrátt út í talmálið og öfugt. Það er því skrýtið að fjölmiðlar sem tala um það sjálfir í fréttaskýringarþáttum sýnum að Íslenska tungan eigi undir högg að sækja skuli ekki sýna gott fordæmi.

--------------------------------------------------