
Er lumma sem ég er orðinn svolítið þreyttur á. Hverjir eru þetta sem eru svona stressaðir? Ég veit það ekki, alla vega ekki ég. Ég er til dæmis ekki búinn að kaupa nema eina jólagjöf af fimmtán eða eitthvað, þar sem ég á aragrúa af syztkinum, en er bara ekkert stressaður. En ég verða að játa að allt þetta tal um að allir séu stressaðir er farið að stressa mig upp. Nú er t.d. einhver prestur að tala um stress jólanna í Ízland í dag og talar um að allir verði að klára hitt og þetta og njóta svo jólanna. Hvað er þetta! ég var að njóta lífsins til hins ítrasta og ætlaði ekki að kaupa neinar gjafir fyrr en á þorláksmessu, í jólaskapi. Núna er ég orðin dauðhræddur um að ég nái ekki að kaupa allar gjafirnar útaf þessu endalausa stress tali. Sé fram á að ég eigi ekki eftir að vera í jólakapi við innkaupin heldur jólastressgeðveikiskasti. Nú er ég líka búinn að leggja mitt að mörkum í umræðu jólastressins og hef vonandi náð að stressa einhvern sauðslakan kæruleysingja, eins og ég var, upp. Gleðileg jól.