
Já, loksins loksins. Ég er búin að vera læra 24/7 núna í tæpar þrjár vikur. Þá meina ég að bókstaflega er ég ekki búin að sjá sjónvarp, fótbolta, Dóru, Geira litla né heldur bjór og hvað þá aðra munaðarvöru allan þennan tíma. Eina sem ég er búinn að sjá eru kenningar um strúktúra, ártöl, norm, alþingi, mannanöfn, ríkisstjórnir, hagfræði, fullveldi, alþjóðastjórnmál og Daða. Já...Daða. Við félagarnir höfum nefninlega mætt saman uppí Odda alla morgna klukkan sjö, +/- tveir;) og lært eins og geðsjúklingar. Þar erum við búnir að sitja að meðaltali 15 tíma á dag og þambað mikið kaff, étið júmbó og innbyrt mikið af fróðleik. Á tímabili vorum við báðir að missa geðheislu en drógum hvorn annað upp úr heimi sturlunar til skiptis. Ég var að átta mig núna eftir að ég kom úr síðasta prófinu að það er komin 17. dez! vika til jóla! og ég er ekki búin að kaupa eina einustu jólagjöf og hvað þá farinn að spá í þeim. Það er seinni tíma vandamál, núna verður farið og slett úr þeim.