laugardagur, desember 11, 2004
Vissu þið að...
--> Ég er búin í einu prófi af fjórum?
--> Kýr hafa fjóra maga?
--> Allir píramídar VORU skjannahvítir?
--> Algengasti litur bíla sem lenda í árekstri er rauður?
--> Ég er að fara í þrjú próf í vikunni...
--> ...Og skila verkefni?
--> Á ættaróðali mínu eru sjö hvolpar, einn fyrir þig?
--> Adam Smith er faðir hagfræðinnar?
--> Félagsfræðingum fannst hagfræðingar eigna sér hann um of?
--> Sjaldan vaknar sá á réttum tíma sem sefur yfir sig?
--> "Love me tender" er málfræðilegar vitlaust, "love me tenderly" er rétt?
--> Stefán Hilmarsson er ókrýndur glósukóngur í H.Í.?
--> Marilyn Monroe var með sex tær á annari löppinni?
--> Ég er um það bil að lesa yfir mig?
--> Á 7. áratugnum lentu Ecuador og Honduras í stríði útaf fótboltaleik?
--> Á ættaróðali mínu er köttur sem heldur að hann sé hundur?
--> Á nafnspjaldi Al Capine stóð að hann væri "used furniture dealer"
--> prófin eru á mánudag, miðvikudag og föstudag?
--> Þau eru samtals tólf klukkutímar á fimm dögum?
--> Hedley Bull og John Burton voru ekki sammála um alþjóðakerfið?
--> Þetta stóð á síðu sem ég rakst á: ,,There is no ice covering Iceland"
--> Michael Jordan fær/fékk meira í auglýsingartekjur á ári hjá Nike en allir verkamenn allra Nike verksmiðjanna í Malasíu?

