۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

mánudagur, febrúar 14, 2005

Föstudagurinn...


...var góður þar sem að aldrei neinu öðru vant fékk ég að hafa bílinn. Það telst til tíðinda þar sem ég hef ekki fyrsta rétt á honum. Ég og Diego fórum í fjórar byggingar skrifstofuveldisins og duttum svo inná sportbar, keyptum okkur fötu og spiluðum pool. Það verður ekki haft eftir hér hvernig sú keppni fór. Ég fór svo á árshátíð Stjórnmálafræðinema þar sem Stefán Hilmars var skemmtanastjóri. Hann sagði góðan brandara á kosnað Hannesar Hólmsteins, sem var orðinn vel kenndur ásamt öðrum kennurum. Ég þambaði líter af rauðvíni, hló dátt og tók fyrstu rútu heim. Þar var gítarglamrari. Ég reif af honum gítarinn söng sex sjö lög og skilaði gítarnum. Gat ekki einu sinni þakkað fyrir lánið þar sem ég missti röddina inní gítarinn. Fór heim með rauðvínslitaðar tennur, þykkar rauðar flögur á vörunum nokkuð vel íðí. Vaknaði klukkan tíu og hélt morgunverðarboð fyrir þrjá. Ég og hin alræmdi Diego brunuðum svo í Hveragerði og partisiteruðum í firmamóti Hamars. Áttum að vinna. Unnum liðið sem vann 3-1 í riðla keppni. Helvítis riðla fyrirkomulag. Kom heim keyrði fólk á flugvöllinn klukkan sex aðfaranótt sunnudags bla bla bla. Matarboð á sunnudaginn bla bla bla, Fondú, pictionari og bla bla bla.

--------------------------------------------------