
Ég les yfir mig á þessu annars ágæta vormisseri. Eða fell. Það ekkert annað í stöðunni. Minn hrokkinhærði kollur, þó hann sé stór og myndarlegur, rúmar ekki svona mikið af kjaftæði á svo stuttum tíma! Ef hið fyrra verður staðreynd ætla ég að fara á Dvalarheimilið Ás í Hveragerði og hafa það gott. Það verður fínt. Labba niðrí Shell á hverjum degi og kaupi mér bingókúlur fyrir hundrað og þrjár, tvo lítra af Grape og fá mér frítt í nefið. Svo fer ég heim á hæli og horfi á vegg það sem eftir er dagsins. Það getur ekki verið svo slæmt. Ef ég fell fer ég á Hlemm.