۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

mánudagur, febrúar 21, 2005

Jón Jónsson fær sér jónu


Einn góðan laugardag ekki fyrir svo löngu fór ég út í einn öl ásamt félaga mínum. Við fórum inn á frekar vafasaman bar að nafni Mónakó, þar sem fjárhættuspil í formi spilakassa er stundað grimmt. Ég lenti á spjalli við mann, líklega á fertugs aldri, sem sat á barnum. Þar sem að ég er of nískur til að setja pening í kassa spjallaði ég við hann meðan félagi minn spilaði póker. Það kom til tals að ég væri í stjórnmálafræði og þá fór hann, eins og svo oft áður þegar fólk eldra en ég kemst að því, að sannfæra mig um að hann væri sko enginn aukvisi í þeim málum. Eftir drykklanga stund spyr hann mig svo hvort að mér sé ekki sama þótt hann kveiki sér í jónu! Ég hló aðeins og sagði síðan; ,,jújú fyrir mér". Ég hélt að honum væri ekki alvara en sá svo að annað var uppá teningnum þegar hann byrjaði að mylja úr sígarettu Á BARBORÐIÐ! Ég hálf fibaðist (ef það er orð) og starði á hann þar sem hann tók svo upp mola úr vasanum og setti saman við. Hann hélt bara áfram að blaðra en ég stóð þarna alveg frosinn. Hann tók síðan pappír uppúr vasanum og saug draslið upp í samanvafin pappírinn og kveikti í. Hann hélt áfram að blaðra þangað til ég sagðist þurfa fara að tala við vin minn eða eitthvað asnalegt til að forða mér. Fyrsta skipti sem ég sé eiturlyf svo frjálslega meðhöndluð á opinberum stað en kannski er þetta standardinn á þessum annars vafasama stað þar sem fjárhættuspil og eiturlyf eru meðhöndluð eins og hvað annað.

--------------------------------------------------