miðvikudagur, mars 30, 2005
Jæja...
...Þá eru íslendingar byrjaðir. Evróvision umræðan byrjar alltaf eins.---> Jú, þannig að fólk hugsar: Við vinnum aldrei neitt, skítum alltaf í buxurnar, komum heim með drulluna upp á bak.
---> Svo gerist það að lagið er frumflutt. Þá segja menn ömurlegt lag, alltof rólegt, alltof fjörugt.
---> Viku seinna segja menn: Þetta er nú bara helvíti fínt lag, grípandi og svona. Hvernig getur annað verið en maður fái þessi djöfulsins lög fastprentuð á heilan þegar þau eru spiluð á kortersfresti á öllum útvarpsstöðvum. (ég hef reyndar ekki enn heyrt lag Selmu enda hlusta ég ekki á útvarp) Þegar menn eru farnir að hugsa þetta fara þeir og gera dauðaleit í öllum fjölmiðlum heimsins til að reyna finna rétta umfjöllun.
---> Svo er hún birt á forsíðu eins þeirra virtu prentmiðla sem við eigum: Íslandi spáð topp sæti, eða: Íslandi spáð fyrsta, eða öðru, eða topp fimm. Svo stendur neðst í greininni svo lítið beri á: Samkvæmt viðtali við miðaldra húsmóðir í Færeyjum. Eða: Samkvæmt virtum Tyrkneskum bloggara sem hefur verið ótrúlega sannspár um úrstlit Evróvision.
---> Þegar hér er komið liggur leiðin bara upp á við. Fólk sannfærir hvort annað um að lagið sé frábært og að allur heimurinn sé sammála því.
---> Svo hefst stigagjöfin og þá heyrir maður lítið minnst á Ísland nema þá kannski "Iceland deux points" og svo harðmælta Íslenska þulu gefa hinum liðunum stig.
---> Eeeeeeeeeeeeeen alltaf stemmning í kring um Evróvision og hreint ágætis ástæða til að hella sig fullan. Við ættum samt að prófa þetta trix sem Úkraínumenn gerðu einhverntíman (að ég held, ég skil ekki Úkraínsku) og senda Selmu án bróka, hún ætti að vera orðin vön stripli eftir þátttöku í Hárinu.
---> Um að gera að fylgjast með og vera með í uppbyggingu stórra drauma um sigur í keppni sem við getum ekki haldið...eurovision.is
þriðjudagur, mars 22, 2005
Gleymdi alveg...
...að gorta mig af frábærri frammistöðu á föstudaginn. Ég og Sólveig nokkur, sem er samnemi minn í stjórnmálafræðinni og fyrrverandi Fsu nemi, héldum kynningu í umsjón hjá útskriftarnemum Fjölbrautaskóla suðurlands. Ég hélt að allir myndu rjúka út þegar fólk áttaði sig á því að eitthvað blaður var að fara eiga sér stað (eins og maður átti til sjálfur)en Þess í stað hlustuðu allir af nærgætni og sýndu mikinn áhuga, enda áhugaverðir einstaklingar á ferð. Við gerðum þetta náttúrulega ótrúlega spennandi með því að minnast mikið á drykkjuhefðir háskólans. Mjög margir sýndu náminu áhuga og mikið um spurningar, fólk var einstaklega hrifið af fjölbreytleika námsins sem við komum svolítið inná. Við blöðruðum örrugglega í 20 mínútur og fólk fylgdist með af áhuga. Eftir fyrirlesturinn komu nokkrir til okkar og spurðu nánar út í námið. Ég hef pottþétt búið til all nokkra stjórnmálaspekúlanta með þessum fyrirlestri annars vegar með frábærri ræðuhæfni og svo náttúrulega með því að stíla inn á það sem íslendingar elska.........jú, að drekka áfengi!!mánudagur, mars 21, 2005
Gjörðu svo vel að setjast!
MYTH #1: "Men can pee standing up"Fact: The reality is men can NOT pee standing up without getting as much as a stray drop on the seat or the outside surface of the toilet. Fragmentation of the urine stream causes particles of urine to dissipate. The larger the distance urine has to travel, the bigger the dissipation radius gets. Some of you may say, "No, not me! I can pee through a donut from 40 feet above!" Well, mister hand-eye coordination, you are probably one of those people who also never ask for directions. Admitting that you have a problem is half the battle. At some point in your life you need to ask yourself, "Is it worth it? What has peeing standing up cost me in my life?"

MYTH #2: "It's a victimless crime."
Fact: Peeing standing up destroys families. Who cleans the bathrooms in your house? Your mother? Your wife? Even if you clean up after yourself, what happens when you are a guest at someone's home, over at your friend's house, visiting the inlaws, or using a public bathroom? Why should someone else have to suffer for your unwillingness to sit down?

TAKE A SEAT
Once you realize you have a problem, you can concentrate on the solution. Changing a life long habit may be difficult, that's why we have created a poster to put in your bathroom as a reminder. The printable version is here.
TAKE ACTION
Our goal is to transform the way the world goes to the bathroom by year 2010. Become an activist and educate your friends by referring them to our website.
Educate your friends and protect your bathroom at the same time! Our printable poster attacks the problem at the root.
If you run a website, big or small, you can join our Yellow Ribbon Campaign, by placing a yellow ribbon on your website and linking it to MAPSU
sunnudagur, mars 20, 2005
Minn fyrsti gripur!
Meðfylgandi mynd er af tólf strengja Yamaha gítar. Hún er ekki bara af einhverjum gítar! heldur fyrsta gítar sem ég hef keypt mér. Ég er búin að glamra á sama gítarinn síðan ég byrjaði að fikta við að spila en það er gítar sem var í eigu Pabba sem hann svo gaf mér. Í meira en tíu ár er ég búin vera með sama gítarinn. Mig hefur alltaf langar í tólf strengja, og reyndar alltaf langað að kaupa mér gítar, og nú er ég búinn að því. Ég er reyndar ekki búin að borga hann en ég er komin með hann í hendurnar og hann hljómar vel. Ég ætla svo að kaupa mér gítar með pikkupp í sumar og er ég eiginlega búin að ákveða hvaða gítar. Hann er í eigu Helga Vals og er einstaklega hljómgóður, þægilegur og eins og nýr. Ég spilaði frumsamið lag fyrir mann í gær. Hann spurði hvort ég væri klikkaður. Mér stóð ekki á sama fyrst því ég hélt að ég væri kannski að stela einhverju lagi vegna þessara viðbragða hans. Svo kom á daginn að svo var ekki. Honum fannst það svo geggjað að hann spurði hvort ég væri klikkaður að vera ekki búinn að koma þessu á framfæri. ,,Láttu ekki stela þessu af þér" voru hans orð og svo bað hann mig um að spila það aftur og aftur. Það gerði að sjálfsögðu með glöðu geði þar sem hégómi minn nærðist vel á þessum miklu lofsyrðum. Alltaf gaman að heyra svona en ég held samt að um ýkjur hafi verið að ræða þar sem áfengi var við hönd.Markmið vikunnar...

...hjá mér eru nokkur. Fyrsta lagi ætla ég mér að finna þann stað sem bakar vöfflur alla daga og gerir mig geðveikan þegar ég geng í gegnum gamla miðbæinn. Á hverjum einasta degi reyni ég að þefa þennan stað uppi þegar ég er á leiðinni heim úr skólanum en án árangurs þrátt fyrir mikinn og unaðslegan angan. Í öðru lagi ætla ég að reyna að vinna hjörtu knattspyrnufélaga minna aftur þar sem ég yfirgaf þjöppuna klukkan tíu og kom ekki aftur. Það var þó ekki ætlun mín, síður en svo. Besti vinur minn átti afmæli gat ég ekki yfirgefið teitið hans þar sem ég hélt uppi fjörinu með gítarglamri og gauli. (þar var líka frítt áfengi) Þriðja markmið mitt er að læra mikið. Fleiri markmið ætla ég ekki að setja mér, enda eru þessi þrjú miklu meira en nóg og mjög svo krefjandi.
föstudagur, mars 18, 2005
Helgin í gleymingi
Þar sem það er svona semi kolgeggjað að gera í skólanum hef ég ákveðið að hafa engan tíma til að læra um helgina. Það er ekki til betri leið til að dreifa huganum en að vera útum allt og alls staðar og hafa engan tíma til að hugsa, því þá hugsar maður ekki um lærdóminn með nagandi samviskubiti á meðan. Eins og ein góð stúlka sagði við mig á Hverfis á fös: maður þarf að vera hæfilega kærulaus í háskóla, og er það sko hverju orði sannara..........þetta man ég! Um helgina á ég eftir að koma á eftirfarandi staði í þessri röð:Reykjavík
Selfoss
Hveragerði
Reykjavík
Akranes
Reykjavík
Hveragerði
Selfoss
Hvolvöllur
Hveragerði
Reykjavík
Helgin verður annars í gleymingi svona:
Föstudagur
08:00 - Kynna sér slide show stjórnmálafræðinnar
08:30 - Blogga
09:00 - Næ í bæklinga og drasl á háskólagarðanna hjá form Politicu
10:25 - Kynni ég stjórnmálafræði í umsjón hjá Fsu nemum
11:04 - Skila bókum á héraðssafnið
11:06 - Hrói Höttur Selfossi
12:43 - Taka bækur á bókasafni Hveragerðis
16:00 - Bruna uppá Skaga í afmæli tvítugrar snótar
Einhverntíman um nótt - Keyri ég heim:(
Laugardagur
09:00 - Keppa í fótbolta á gervigrasi Fylkismanna
11:00 - Súpufundur stjórnmálafræðinema á Lækjarbrekku (málefni: Pólitískar ráðningar)
13:00 - Leggja sig ef völ er á
15:00 - Horfa á fótbolta og drekk úrvals mjeð
20:00 - Þjappa hjá fótboltanum, borða, drekka, djöflast, drekka!
20:00 - 25 ára afmæli Guðna Vilberg
20:00 - 00:00 - Flakka milli þjöppu og mælis
00:00> - drekka - röfla - drekka - röfla - drekka - dansa???..........neeeei röfla.
Sunnudagur
Ferming á Hvolsvelli
Það er ekki séns að ég eigi eftir að hugsa um lærdóm fyrr en fyrsta lagi á mánudag, þriðjudag þannig að ég er save þangað til
mánudagur, mars 14, 2005
Ég...
...get ekki einbeitt mér. Ég get ekki lært. Það er svo mikið sem ég þarf að læra að ég veit ekki hvar ég á að byrja. Bara ef ég gæti byrjað einhversstaðar þá myndi ég kannski geta einbeitt mér því að þá væri ekki eins mikið eftir og þá gæti ég verið rólegur en ég get það ekki af því að ég á eftir að gera svo mikið að ég er að fara yfirum á þessu öllusama er að hugsa um að fara gera eitthvað en veit ekki hvar ég á að byrja kannski er best að byrja bara ekki neitt....sunnudagur, mars 13, 2005
Skrítið...
...hvað er fallegt veður úti...að maður skuli í raun vera enginn
...hvað ég varð fullur af einni kippu á föstudaginn
...hvað ég hitti marga á Hverfis
...hvað ég talaði mikið á Hverfis
...að ég muni varla um hvað ég talaði um á Hverfis
...að það komi regnbogi
...að ég nenni ekki að byrja á einhverjum af þessum verkefnum
...að mér finnist skrítið að ég nenni því ekki
...hvað það er undarleg tilfinning í andrúmsloftinu
...að margar stjörnur skuli vera löngu útbrunnar en skíni samt
...hvað er ógeðslega kalt úti
...hvað þessi helgi var fljót að líða
...hvað ég gerði margt þessa helgi
...hvað ekkert af því hafði tilgang fyrir frammgang lífs míns
...að afleiðingar þess eru engar
...að minningin hverfi án þess að maður viti af því
...að maður skuli yfir höfuð gera nokkuð
...hvað Pearl Harbour var svakalega léleg mynd
...hvað einn atburður getur haft mikil áhrif en samt ekki
...hvað lítið vit er í þessu
...að eitthvað sé í loftinu sem hefur áhrif á fólk
...að maður sé alltaf að leita að einhverju
...að vita ekki að hverju
...að ég sé að skrifa þetta
mánudagur, mars 07, 2005
Erfið helgi...
...að baki og tvö töp með. Við Hamarsmenn spiluðum tvo leiki við um helgina, annan við Hvíta Riddarann og hin við 2. flokk Gróttu. Gekk ágætlega í fyrri leiknum á laugardaginn, enda vorum við þá með sæmilegan mannskap og þar á meðal tvo nýja sem komu mjög vel út. Í þeim leik varð slæmt fótbrot á einum sóknarmanni Hvíta Riddarans í lok leiksins, frekar viðbjóðslegt. Það vildi einnig svo undarlega til að hann er vinnufélagi Dóru. En á sunnudaginn var fátt um mannin og mikið af ungum strákum að spila. Hinir eldri spiluðu líka á laugardaginn og því ekkert svaka sprækir og þar á meðal ég. Ég spilaði 85 mínútur á laugardaginn og 90 á sunnudaginn og gerði ekki rassgat í hvorugum leiknum. Í fyrri af því að ég er ekki í formi og í seinni af því að ég var svo þreyttur eftir fyrri. Á sunnudaginn þegar leið á var það þannig að ég gaf allt í sprett en horfði svo á mann taka fram úr mér á gönguhraða. Formið hlýtur hins vegar að fara að koma þar sem ég er búin að spila nokkuð marga leiki undanfarið og nánast alltaf heilar 90 og nú um helgina tvo daga í röð. Á miðvikudaginn mætum við svo Í.R. sem er mjög gott lið og reyndar alveg nokkrum þrepum ofar en við og pottþétt í MUN betra formi. En ekki má láta það hafa áhrif á sig heldur mæta þeim af krafti. Þetta er jú fyrst og fremst gert til að koma manni í form, láta mann finna fyrir því að ef maður kemur sér ekki í form þá verður maður rassskelltur illilega í sumar.miðvikudagur, mars 02, 2005
Á rangri hillu?
Já ekki nema von maður spyrji. Samkvæmt nýrri könnun sem framkvæmd var af "the Sleep Council", sem ég vissi reyndar ekki að væri til, sofa stjórnmálamenn ekki nema fimm tíma að meðaltali á sólahring. Einu sem sofa minna eru bráðavaktarlæknar sem sofa að meðaltali fjóran og hálfan. En maður spyr sig, ættu þetta einmitt ekki vað vera mennirnir sem að sofa nægilega mikið. Læknar eru menn sem eru með mannslíf í höndunum í vinnunni, og stjórnmálamenn þjóð eða mikilvægar ákvarðanir. Það segir sig sjálft að ósofinn maður er ekki eins vel til þess búinn að taka mikilvæga ákvörðun, hugsa rétt og vera jafn athugull og vel sofinn maður. Svo var annað..... stjórnmálamenn eyða líka lengstum tíma í að sofna. Það gæti verið útaf nagandi samviskubiti yfir því að hafa hækkað eftirlaunin hjá sér..... eða látið skrifa eitthvað á ríkið til einkanota. Ég hef því, í ljósi þessa, ákveðið að verða ekki stjórnmálamaður. Mér þykir einkar gott að sofa og ætla ekki að taka áhættuna á því að ég muni ekki geta það. Ég ætla heldur ekki að mæta ekki í morguntíma mína í háskólanum og sofa héðan í frá alltaf alla vega tíu tíma. Ekki fer ég að fara fyrr að sofa..... hell no!
