
...að baki og tvö töp með. Við Hamarsmenn spiluðum tvo leiki við um helgina, annan við Hvíta Riddarann og hin við 2. flokk Gróttu. Gekk ágætlega í fyrri leiknum á laugardaginn, enda vorum við þá með sæmilegan mannskap og þar á meðal tvo nýja sem komu mjög vel út. Í þeim leik varð slæmt fótbrot á einum sóknarmanni Hvíta Riddarans í lok leiksins, frekar viðbjóðslegt. Það vildi einnig svo undarlega til að hann er vinnufélagi Dóru. En á sunnudaginn var fátt um mannin og mikið af ungum strákum að spila. Hinir eldri spiluðu líka á laugardaginn og því ekkert svaka sprækir og þar á meðal ég. Ég spilaði 85 mínútur á laugardaginn og 90 á sunnudaginn og gerði ekki rassgat í hvorugum leiknum. Í fyrri af því að ég er ekki í formi og í seinni af því að ég var svo þreyttur eftir fyrri. Á sunnudaginn þegar leið á var það þannig að ég gaf allt í sprett en horfði svo á mann taka fram úr mér á gönguhraða. Formið hlýtur hins vegar að fara að koma þar sem ég er búin að spila nokkuð marga leiki undanfarið og nánast alltaf heilar 90 og nú um helgina tvo daga í röð. Á miðvikudaginn mætum við svo Í.R. sem er mjög gott lið og reyndar alveg nokkrum þrepum ofar en við og pottþétt í MUN betra formi. En ekki má láta það hafa áhrif á sig heldur mæta þeim af krafti. Þetta er jú fyrst og fremst gert til að koma manni í form, láta mann finna fyrir því að ef maður kemur sér ekki í form þá verður maður rassskelltur illilega í sumar.