۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

þriðjudagur, mars 22, 2005

Gleymdi alveg...


...að gorta mig af frábærri frammistöðu á föstudaginn. Ég og Sólveig nokkur, sem er samnemi minn í stjórnmálafræðinni og fyrrverandi Fsu nemi, héldum kynningu í umsjón hjá útskriftarnemum Fjölbrautaskóla suðurlands. Ég hélt að allir myndu rjúka út þegar fólk áttaði sig á því að eitthvað blaður var að fara eiga sér stað (eins og maður átti til sjálfur)en Þess í stað hlustuðu allir af nærgætni og sýndu mikinn áhuga, enda áhugaverðir einstaklingar á ferð. Við gerðum þetta náttúrulega ótrúlega spennandi með því að minnast mikið á drykkjuhefðir háskólans. Mjög margir sýndu náminu áhuga og mikið um spurningar, fólk var einstaklega hrifið af fjölbreytleika námsins sem við komum svolítið inná. Við blöðruðum örrugglega í 20 mínútur og fólk fylgdist með af áhuga. Eftir fyrirlesturinn komu nokkrir til okkar og spurðu nánar út í námið. Ég hef pottþétt búið til all nokkra stjórnmálaspekúlanta með þessum fyrirlestri annars vegar með frábærri ræðuhæfni og svo náttúrulega með því að stíla inn á það sem íslendingar elska.........jú, að drekka áfengi!!

--------------------------------------------------