sunnudagur, mars 20, 2005
Markmið vikunnar...

...hjá mér eru nokkur. Fyrsta lagi ætla ég mér að finna þann stað sem bakar vöfflur alla daga og gerir mig geðveikan þegar ég geng í gegnum gamla miðbæinn. Á hverjum einasta degi reyni ég að þefa þennan stað uppi þegar ég er á leiðinni heim úr skólanum en án árangurs þrátt fyrir mikinn og unaðslegan angan. Í öðru lagi ætla ég að reyna að vinna hjörtu knattspyrnufélaga minna aftur þar sem ég yfirgaf þjöppuna klukkan tíu og kom ekki aftur. Það var þó ekki ætlun mín, síður en svo. Besti vinur minn átti afmæli gat ég ekki yfirgefið teitið hans þar sem ég hélt uppi fjörinu með gítarglamri og gauli. (þar var líka frítt áfengi) Þriðja markmið mitt er að læra mikið. Fleiri markmið ætla ég ekki að setja mér, enda eru þessi þrjú miklu meira en nóg og mjög svo krefjandi.

