
Meðfylgandi mynd er af tólf strengja Yamaha gítar. Hún er ekki bara af einhverjum gítar! heldur fyrsta gítar sem ég hef keypt mér. Ég er búin að glamra á sama gítarinn síðan ég byrjaði að fikta við að spila en það er gítar sem var í eigu Pabba sem hann svo gaf mér. Í meira en tíu ár er ég búin vera með sama gítarinn. Mig hefur alltaf langar í tólf strengja, og reyndar alltaf langað að kaupa mér gítar, og nú er ég búinn að því. Ég er reyndar ekki búin að borga hann en ég er komin með hann í hendurnar og hann hljómar vel. Ég ætla svo að kaupa mér gítar með pikkupp í sumar og er ég eiginlega búin að ákveða hvaða gítar. Hann er í eigu Helga Vals og er einstaklega hljómgóður, þægilegur og eins og nýr. Ég spilaði frumsamið lag fyrir mann í gær. Hann spurði hvort ég væri klikkaður. Mér stóð ekki á sama fyrst því ég hélt að ég væri kannski að stela einhverju lagi vegna þessara viðbragða hans. Svo kom á daginn að svo var ekki. Honum fannst það svo geggjað að hann spurði hvort ég væri klikkaður að vera ekki búinn að koma þessu á framfæri. ,,Láttu ekki stela þessu af þér" voru hans orð og svo bað hann mig um að spila það aftur og aftur. Það gerði að sjálfsögðu með glöðu geði þar sem hégómi minn nærðist vel á þessum miklu lofsyrðum. Alltaf gaman að heyra svona en ég held samt að um ýkjur hafi verið að ræða þar sem áfengi var við hönd.