
Já ekki nema von maður spyrji. Samkvæmt nýrri könnun sem framkvæmd var af "the Sleep Council", sem ég vissi reyndar ekki að væri til, sofa stjórnmálamenn ekki nema fimm tíma að meðaltali á sólahring. Einu sem sofa minna eru bráðavaktarlæknar sem sofa að meðaltali fjóran og hálfan. En maður spyr sig, ættu þetta einmitt ekki vað vera mennirnir sem að sofa nægilega mikið. Læknar eru menn sem eru með mannslíf í höndunum í vinnunni, og stjórnmálamenn þjóð eða mikilvægar ákvarðanir. Það segir sig sjálft að ósofinn maður er ekki eins vel til þess búinn að taka mikilvæga ákvörðun, hugsa rétt og vera jafn athugull og vel sofinn maður. Svo var annað..... stjórnmálamenn eyða líka lengstum tíma í að sofna. Það gæti verið útaf nagandi samviskubiti yfir því að hafa hækkað eftirlaunin hjá sér..... eða látið skrifa eitthvað á ríkið til einkanota. Ég hef því, í ljósi þessa, ákveðið að verða ekki stjórnmálamaður. Mér þykir einkar gott að sofa og ætla ekki að taka áhættuna á því að ég muni ekki geta það. Ég ætla heldur ekki að mæta ekki í morguntíma mína í háskólanum og sofa héðan í frá alltaf alla vega tíu tíma. Ekki fer ég að fara fyrr að sofa..... hell no!