sunnudagur, mars 13, 2005
Skrítið...
...hvað er fallegt veður úti...að maður skuli í raun vera enginn
...hvað ég varð fullur af einni kippu á föstudaginn
...hvað ég hitti marga á Hverfis
...hvað ég talaði mikið á Hverfis
...að ég muni varla um hvað ég talaði um á Hverfis
...að það komi regnbogi
...að ég nenni ekki að byrja á einhverjum af þessum verkefnum
...að mér finnist skrítið að ég nenni því ekki
...hvað það er undarleg tilfinning í andrúmsloftinu
...að margar stjörnur skuli vera löngu útbrunnar en skíni samt
...hvað er ógeðslega kalt úti
...hvað þessi helgi var fljót að líða
...hvað ég gerði margt þessa helgi
...hvað ekkert af því hafði tilgang fyrir frammgang lífs míns
...að afleiðingar þess eru engar
...að minningin hverfi án þess að maður viti af því
...að maður skuli yfir höfuð gera nokkuð
...hvað Pearl Harbour var svakalega léleg mynd
...hvað einn atburður getur haft mikil áhrif en samt ekki
...hvað lítið vit er í þessu
...að eitthvað sé í loftinu sem hefur áhrif á fólk
...að maður sé alltaf að leita að einhverju
...að vita ekki að hverju
...að ég sé að skrifa þetta

