þriðjudagur, apríl 26, 2005
Og1 að sjálfsögðu...
Eins og flestum er nú kunnugt hefur Síminn kært Og Vodafone í bræðiskasti til Samkeppnisstofnunnar af því að þeir geta ekki boðið jafn góðan deal og þeir gera nú með nýjasta pakkanum sem ber nafnið Og1. Fólk flykkist í verlsanir Og Vodafone og færir öll sín viðskipti, bæði heimasíma, Gsm síma og netþjónustu, yfir til þeirra. Þess má geta að ég og sambýlismaður minn Daði gerðum slíkt hið sama í gær og eigum von á Vodafone-manni í að setja upp þráðlaust net á Snorrabrautina innan tíðar, sem gerir þessa bachelor-pad að einu heitasta hangouti norðan Alpafjalla...
En það sem ekki jafn margir vita er að íþóttarisinn Nike hefur einnig kært Og Vodafone fyrir að stela markaðsetningu þeirra á körfuboltadrasli. Eftir að þýðingardeild Nike í Tælandi var búin að fletta í orðabókum alla síðustu viku fékkst loks sú niðurstaða að um rán væri að ræða. Yfirmenn Nike eiga nú í viðræðum við KB í Borgarnesi, um hvaða leiðir þeir fóru í stóra KB-banka málinu, til þess standa ekki í þessu til einskis. Talsmaður Nike, Loul Chow Mong í Udon Thani í Tælandi hafði þetta um málið að segja: เมื่อเวลา 07.00 น. วันที่ 25 เม.ย. ร.ต.ต.สมมิตร พรหมตอง ร้อยเวรสภ.อ.เมืองฉะเชิงเทรา ได้รับแจ้งเหตุ มีคนนั่งตายบนรถจักรยานยนต์ ที่จอดอยู่ริมถนนเลี่ยงเมืองข้าง รพ.โสธราเวช หมู่ 6 ต.โสธร จึงพร้อมด้วย น.พ.ภานุวัฒน์ สำเนียงเสนาะ แพทย์เวร รพ.เมืองฉะเชิงเทรา และเจ้าหน้าที่หน่วยกู้ภัย ฉะเชิงเทรา รุดไปสอบสวน. Von er á frekari tíðindum innan tíðar.sunnudagur, apríl 24, 2005
Afmælídag...
Í dag hef ég upplifað hvorki meira né minna en tutttugu og femm ár. Úff...i'm old man!!! Allar gjafir sem ekki berast í dag skulu berast eigi síðar en sem allra allra fyrst. Ég gerði svo sem ekki mikið þennan tímamóta dag í mínu lífi. Ég spilaði fótboltaleik, fór á kaffihús með venkonu og svo bara læra læra. En nú þegar hátindinum er náð og ekkert eftir nema að fara að drífa sig niður ætti maður auðvitað að vera að fagna. Ég ákvað þó að fresta hátíðarhöldunum fram yfir próf og er því von á heljarinnar veisluhöldum einhverntíman eftir 13. maí. Það er annars skemmtileg staðreynd að alltaf þegar ég, sólargeislinn sem ég er, á afmæli þá er alltaf svo geggjað veður að hálfa væri nóg. Ég persónulega tek því þannig að ég sé svo frábær gæi að æðri máttarvöld geti ekki annað en skartað sínu fegursta þegar þetta meistaraverk þeirra fagnar tímamótum á lífsferli sínum. En svo kemur á móti að ég get aldrei notið þeirrar blíðu sem mér er veitt á mínum degi vegna þess að undartekningarlaust er ég á fullu í próflestri á þessum tíma. En hvað sem því líður þá verður ellinni, í bland við próflokaléttir, fagnað ærlega einhvern tíman seinni hluta maí mánaðar.þriðjudagur, apríl 19, 2005
Landlocked Blues (Bright eyes)
If you walk away I walk awayfirst tell me which road you will take
I don't want to risk our paths crossing somday
so you walk that way I'll walk this way
and the future hangs over our heads
and it moves with each current event
until it falls all around like a cold steady rain
just stay in when it's lookin' this way
and the moon's laying low in the sky
forcing everything metal to shine
and the sidewalk holds diamonds like a jewelry store case
they argue "walk this way," "no walk this way"
and laura's asleep in my bed
as I'm leaving she wakes up and says
I dreamed you were carried away on the crest of a wave
baby don't go away, come here
and there's kids playing guns in the street
and one's pointing his tree branch at me
So I put my hands up I say "enough is enough"
if you walk away I walk away... and he shot me dead
I found a liquid cure
for my landlocked blues
it will pass away
like a slow parade
it's leaving but I don't know how soon
and the world's got me dizzy again
you'd think after 22 years I'd be used to the spin
and it only feels worse when I stay in one place
so I'm always pacing around or walking away
I keep drinking the ink from my pen
and I'm balancing history books up on my head
but it all boils down to one quoteable phrase
"If you love something give it away"
A good woman will pick you apart
a box full of suggestions for your possible heart
But you may be offended, and you may be afraid
but don't walk away, don't walk away
We made love on the living room floor
with the noise in the background from a televised war
And in the deafening pleasure I thought I heard someone say
"If we walk away, they’ll walk away"
But greed is a bottomless pit
And our freedom's a joke we're just taking a piss
And the whole world must watch the sad comic display
If you're still free start runnin' away'cause we're comin' for ya
I've grown tired of holding this pose
I feel more like a stranger each time I come home
So I'm making a deal with the devils of fame
Sayin' let me walk away, please
You'll be free child once you have died
from the shackles of language and measurable time
And then we can trade places, play musical grave
still then walk away walk away walk away walk away
So I'm up at dawn, putting on my shoes
I just want to make a clean escape
I'm leaving but I don't know where to
I know I'm leaving but I don't know where to
föstudagur, apríl 15, 2005
Titanic
Breska skipið, sem allir þekkja, sökk þann 15. apríl árið 1912 klukkan 2:20 um nótt. Það sökk í Norður-Atlants hafið um 400 mílur suður af Nýfundnalandi, Kanada. Um borð í þessu stærsta skipi sem byggt hafði verið voru um 2200 manns með talið bæði farþegar og áhöfn. Skipið hélt úr höfn frá Southampon á Englandi í jómfrúar ferð sína yfir Atlants hafið og lenti á ísjaka rétt fyrir minætti.

Titanic var hannað af William Pirre, Írskum skipasmíðara, og það var byggt í Belfast. Skipið var sagt það hraðskreiðasta í heimi ásamt því að vera það stærsta. Það var 883 fet frá stafni til skuts og var skipt í 16 hólf sem hægt var að loka af og hægt var að loka fjórum af þessum hólfum af, ef gat kæmi á skipið, án þess að það myndi sökkva. Vegna þessa var Titanic talið ósökkvanlegt af þeim mönnum sem hönnuðu og smíðuðu það. Rétt fyrir miðnætti 14. apríl kom skipið að ísjaka sem ekki var tekið eftir í tæka tíð og náði skipið því ekki að beygja frá honum.
Það olli því að fimm hólf af þessum 16 rifnuðu upp og fylltust af sjó. Við þungan af sjónum í hólfunum fimm togaði þunginn stafnið á skipinu niður og sjór flæddi svo í hin hólfin eitt af öðru. Stafn skipsins sóttin niður og á endanum stóð skipið nánast lóðrétt. En þá gaf skipið sig, brotnaði í tvennt og um klukkan 2:20 15. apríl sukku stafn og skutur á botn Atlantshafsins. Vegna þess hve lítið um neyðarbúnað var um borð og þess hve fáir björgunar bátar voru fóru um 1500 manns annað hvort niður með skipinu eða fraus til dauða í ísköldu Atlantshafinu. Flestir þeirra 700 sem lifðu af voru börn og konur og þar á meðal Kate Winslet. Einni klukkustun og tuttugu mínútum eftir að Titanic fór niður kom skip á svæðið. Þeir sem lifðu af í björgunarbátum voru teknir um borð ásamt handfylli af öðru fólki sem lá á flekum og öðru drasli úr skipinu. Það kom svo seinna í ljós að annað skip hafði verið rétt hjá í um 20 mílna fjarlægð þegar slysið átti sér stað en heyrði ekki neyðarkall Titanics vegna þess að fjarskipta maðurinn á því skipi var ekki á vakt. Mikil reiði fylgdi í kjölfar þessa hörmulega sjóslyss vegna lélegs búnaðar og árið 1913 var haldin alþjóða ráðstefna um öryggi við sjósókn. Þar voru settar reglur um að öll skip skyldu hafa björgunar báta um borð fyrir alla farþega og að halda skyldi námskeið um notkun þeirra. Alþjóða Ísvöktun var sett á laggirnar til að fylgjast með ísjökum á siglangarleiðum Norður-Atlants hafsins ásamt því að öll skip áttu eftir þetta að hafa 24 tíma fjarskipta vaktir, enda hefði það getað bjargað hundruðum mannslífa þennan örlagaríka dag.

Titanic var hannað af William Pirre, Írskum skipasmíðara, og það var byggt í Belfast. Skipið var sagt það hraðskreiðasta í heimi ásamt því að vera það stærsta. Það var 883 fet frá stafni til skuts og var skipt í 16 hólf sem hægt var að loka af og hægt var að loka fjórum af þessum hólfum af, ef gat kæmi á skipið, án þess að það myndi sökkva. Vegna þessa var Titanic talið ósökkvanlegt af þeim mönnum sem hönnuðu og smíðuðu það. Rétt fyrir miðnætti 14. apríl kom skipið að ísjaka sem ekki var tekið eftir í tæka tíð og náði skipið því ekki að beygja frá honum.
Það olli því að fimm hólf af þessum 16 rifnuðu upp og fylltust af sjó. Við þungan af sjónum í hólfunum fimm togaði þunginn stafnið á skipinu niður og sjór flæddi svo í hin hólfin eitt af öðru. Stafn skipsins sóttin niður og á endanum stóð skipið nánast lóðrétt. En þá gaf skipið sig, brotnaði í tvennt og um klukkan 2:20 15. apríl sukku stafn og skutur á botn Atlantshafsins. Vegna þess hve lítið um neyðarbúnað var um borð og þess hve fáir björgunar bátar voru fóru um 1500 manns annað hvort niður með skipinu eða fraus til dauða í ísköldu Atlantshafinu. Flestir þeirra 700 sem lifðu af voru börn og konur og þar á meðal Kate Winslet. Einni klukkustun og tuttugu mínútum eftir að Titanic fór niður kom skip á svæðið. Þeir sem lifðu af í björgunarbátum voru teknir um borð ásamt handfylli af öðru fólki sem lá á flekum og öðru drasli úr skipinu. Það kom svo seinna í ljós að annað skip hafði verið rétt hjá í um 20 mílna fjarlægð þegar slysið átti sér stað en heyrði ekki neyðarkall Titanics vegna þess að fjarskipta maðurinn á því skipi var ekki á vakt. Mikil reiði fylgdi í kjölfar þessa hörmulega sjóslyss vegna lélegs búnaðar og árið 1913 var haldin alþjóða ráðstefna um öryggi við sjósókn. Þar voru settar reglur um að öll skip skyldu hafa björgunar báta um borð fyrir alla farþega og að halda skyldi námskeið um notkun þeirra. Alþjóða Ísvöktun var sett á laggirnar til að fylgjast með ísjökum á siglangarleiðum Norður-Atlants hafsins ásamt því að öll skip áttu eftir þetta að hafa 24 tíma fjarskipta vaktir, enda hefði það getað bjargað hundruðum mannslífa þennan örlagaríka dag.fimmtudagur, apríl 14, 2005
Word count!
Eins og sjá má á nýjustu tölum lítur þetta ALLS EKKI vel út. 167 orð komin klukkan 15:33 á fimmtudegi. Skil: Mánudagurinn 18. apríl fyrir kukkan 21:30 og þá eiga að vera komin alla vega ca. 7859 orð, eða það sem þarf til að ná yfir 20 blaðsíður. Að manni skuli detta í hug að vera skrifa hér um ekki neitt í stað þess að vera skrifa um ,,Hvaða áhrif nýjar áherslur í stjórnun hafi á aðgreiningu stjórnmála og stjórnsýslu" í word skjal sem er á þessum tíma punkti nálægt því að vera tómt!!!þriðjudagur, apríl 12, 2005
Aumingja Diego
Ég fékk rétt í þessu undarlega en jafnframt mög svo sterka opnun. Hún var þannig að ég er alveg viss um að á morgun mun ég vakna. Ekki nóg með það heldur mun vanta á mig vinstri geirvörtuna. Ég mun leita að henni í örvæntingu minni en án árangurs. Því næst mun ég fara á klósettið. En þá mun ég átta mig á því að ég fór vitlausu meginn frammúr og þess vegna sé ég ekki að pissa í klósettið heldur á rúm Diegos Conezegos. Þá mun ég breiða sæng hans yfir blettinn og fara aftur uppí rúm. Á leið minni þangað mun ég sjá geirvörtuna mína liggja á gólfinu. Ég mun taka hana upp, blása af henni mesta rykið og setja hana á sinn stað. Svo mun ég fara upp í rúm og fara svo réttu megin frammúr. Eftir það mun ég eiga glimrandi fínan dag. En svo er ekkert víst að þetta standist en ég get sagt ykkur það að sannfæring mín er gríðarleg.mánudagur, apríl 11, 2005
Rakst á...
...Skemmtilega síðu á netinu sem er heldur betur glæsileg. Þar er fullyrt að Debbie hin sívinsæla sé að ,,gera" Hveragerði og hafi sofið hjá all nokkrum Hvergerðingum. Þessi síða hefur örugglega verið gerð fyrir löngu því að hún er aðeins orðin úrelt og langt frá því nýtískuleg, þrátt fyrir að hafa kannski verið með þeim flottari á sínum tíma. Ég hef einn mann grunaðan um að standa bak við hana og leiði að því líkum að hann hafi gert hana á framhaldsskóla árum sínum. Það er aðeins einn maður sem ávarpar mig sem Geira í Múla og það er Lárus Arnar. Þess vegna ætla ég að titla honum þessa síðu þangað til annað kemur í ljós. En ég vil samt taka það fram að og ég stend við það að... ,,I did not have sexual relations with that woma, Ms. Debbie!!!"miðvikudagur, apríl 06, 2005
,,Ég hata félagsráðgjafa!"
Verð að segja að ég er frekar svekktur yfir því að meðlimir stórhljómsveitarinnar Elínu Helenu hafi ákveðið að gefast upp. Þeir hættu fyrir nokkru síðan en ekki í fulla hnefanna að mínu mati. Leti. Þeir voru hreinlega ekki nógu duglegir að plögga og hreinlega nenntu því ekki. Ég er viss um að ef þeir hefðu haldið áfram hefðu þeir sigrað heiminn með Daða Óskars og Eyfa perra í fararbroddi. Í þessari hljómsveit vour frábærir spilarar með frábæra tónlistastefnu. Þeir voru með eindæmum frumlegir í textagerð með frábæra tónlist. Ég hef heyrt all nokkur lög með þeim og er viss um að þau þyrftu ekki að heyrast oft á útvarpsstöðvum landsins til að fólk tæki eftir þeim. Fann hér tvö lög í mp3 formi á netinu og hvet fólk til að hlusta og dæma svo sjálft. Hér hittarinn Skoðanir á útsölu og ef þið hlustið á það fattið þið fyrirsögnina. Hér er svo lagið Ekki séns og svo síðan þeirra þeirramánudagur, apríl 04, 2005
Run......
Hef engan tíma fyrir þetta kjaftæði. Hef engan tíma fyrir ekki neitt. Svaf ekkert í nótt útaf stressi. Ég á eftir að skrifa fimmtíu blaðsíður um þrjú mismunandi efni, sem ég veit ekkert um, á næstu tólf dögum. Gangi mér vel, klapp, klapp á bak. Ef einhver hefur innlegg í þá ritgerð sem ég er að vinna í núna þá væri það vel þegið. Efnið er: Er tekjujöfnun á vegum opinberra aðila réttlætanleg? Ólík svör Rawls og Nozicks. Í guðs bænum tjáið ykkur um þetta. Svo vorum við að spá í einu ég og fótboltamenn miklir eftir kappleik á laugardaginn (þess ber að geta að of mikið af karlhormónum á einum stað og endorfín víma gæti hafa átt sinn þátt í því) en... pælingin var sú ef að eitthvað er ókeypis... er þá það sem maður borgar fyrir keypis? Fór í ríkið áðan og fékk keypis bjór! Er það? Neeeeei!... er það? Fór í kringluna áðan og fékk ókeypis geisladisk, nú er það? ég fór í Skífuna áðan og fékk keypis geisladisk! Neeeeei! andskotinn. Ef einhver íslenskufræðingur þarna úti getur tekið af allan vafa um þetta þá í guðs bænum!
