۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

sunnudagur, apríl 24, 2005

Afmælídag...


Í dag hef ég upplifað hvorki meira né minna en tutttugu og femm ár. Úff...i'm old man!!! Allar gjafir sem ekki berast í dag skulu berast eigi síðar en sem allra allra fyrst. Ég gerði svo sem ekki mikið þennan tímamóta dag í mínu lífi. Ég spilaði fótboltaleik, fór á kaffihús með venkonu og svo bara læra læra. En nú þegar hátindinum er náð og ekkert eftir nema að fara að drífa sig niður ætti maður auðvitað að vera að fagna. Ég ákvað þó að fresta hátíðarhöldunum fram yfir próf og er því von á heljarinnar veisluhöldum einhverntíman eftir 13. maí. Það er annars skemmtileg staðreynd að alltaf þegar ég, sólargeislinn sem ég er, á afmæli þá er alltaf svo geggjað veður að hálfa væri nóg. Ég persónulega tek því þannig að ég sé svo frábær gæi að æðri máttarvöld geti ekki annað en skartað sínu fegursta þegar þetta meistaraverk þeirra fagnar tímamótum á lífsferli sínum. En svo kemur á móti að ég get aldrei notið þeirrar blíðu sem mér er veitt á mínum degi vegna þess að undartekningarlaust er ég á fullu í próflestri á þessum tíma. En hvað sem því líður þá verður ellinni, í bland við próflokaléttir, fagnað ærlega einhvern tíman seinni hluta maí mánaðar.

--------------------------------------------------