
Ég fékk rétt í þessu undarlega en jafnframt mög svo sterka opnun. Hún var þannig að ég er alveg viss um að á morgun mun ég vakna. Ekki nóg með það heldur mun vanta á mig vinstri geirvörtuna. Ég mun leita að henni í örvæntingu minni en án árangurs. Því næst mun ég fara á klósettið. En þá mun ég átta mig á því að ég fór vitlausu meginn frammúr og þess vegna sé ég ekki að pissa í klósettið heldur á rúm Diegos Conezegos. Þá mun ég breiða sæng hans yfir blettinn og fara aftur uppí rúm. Á leið minni þangað mun ég sjá geirvörtuna mína liggja á gólfinu. Ég mun taka hana upp, blása af henni mesta rykið og setja hana á sinn stað. Svo mun ég fara upp í rúm og fara svo réttu megin frammúr. Eftir það mun ég eiga glimrandi fínan dag. En svo er ekkert víst að þetta standist en ég get sagt ykkur það að sannfæring mín er gríðarleg.