۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

mánudagur, apríl 04, 2005

Run......


Hef engan tíma fyrir þetta kjaftæði. Hef engan tíma fyrir ekki neitt. Svaf ekkert í nótt útaf stressi. Ég á eftir að skrifa fimmtíu blaðsíður um þrjú mismunandi efni, sem ég veit ekkert um, á næstu tólf dögum. Gangi mér vel, klapp, klapp á bak. Ef einhver hefur innlegg í þá ritgerð sem ég er að vinna í núna þá væri það vel þegið. Efnið er: Er tekjujöfnun á vegum opinberra aðila réttlætanleg? Ólík svör Rawls og Nozicks. Í guðs bænum tjáið ykkur um þetta. Svo vorum við að spá í einu ég og fótboltamenn miklir eftir kappleik á laugardaginn (þess ber að geta að of mikið af karlhormónum á einum stað og endorfín víma gæti hafa átt sinn þátt í því) en... pælingin var sú ef að eitthvað er ókeypis... er þá það sem maður borgar fyrir keypis? Fór í ríkið áðan og fékk keypis bjór! Er það? Neeeeei!... er það? Fór í kringluna áðan og fékk ókeypis geisladisk, nú er það? ég fór í Skífuna áðan og fékk keypis geisladisk! Neeeeei! andskotinn. Ef einhver íslenskufræðingur þarna úti getur tekið af allan vafa um þetta þá í guðs bænum!

--------------------------------------------------