fimmtudagur, apríl 14, 2005
Word count!
Eins og sjá má á nýjustu tölum lítur þetta ALLS EKKI vel út. 167 orð komin klukkan 15:33 á fimmtudegi. Skil: Mánudagurinn 18. apríl fyrir kukkan 21:30 og þá eiga að vera komin alla vega ca. 7859 orð, eða það sem þarf til að ná yfir 20 blaðsíður. Að manni skuli detta í hug að vera skrifa hér um ekki neitt í stað þess að vera skrifa um ,,Hvaða áhrif nýjar áherslur í stjórnun hafi á aðgreiningu stjórnmála og stjórnsýslu" í word skjal sem er á þessum tíma punkti nálægt því að vera tómt!!!
