mánudagur, maí 09, 2005
Skondið...
...símtal sem ég átti við ónefnda vinkonu mína á sunnudag verður nú birt hér. (búið er að slíta framan af og slípa símtalið til, til þess að gera það skiljanlegra fyrir kæru lesendur, það þótti líka óþarfi að birta kommennt síðuhaldara um málið):Símtal 1:
Ónefnd: Já, já þú ert svona hress?
Bear: Ha, ég?
Ónefnd, segir við mann utan símtals: Hvar er bíllinn?
Maður: Ég veit það ekki hvar er hann?
Ónefnd (hvasst): Veistu ekki um bílinn???
Maður: Nei... veist þú ekki um hann?
Ónefnd: Ásgeir, má ég hringja í þig á eftir?
Bear: Ha, ég?
Alvarlegt samtal á sér stað milli ónefnds fólks á ónefndum stað, og svo...
Símtal 2:
Ónefnd: Búwahahahahahaha! Veistu hvað?
Bear: Ha?
Ónefnd: Ég fór í matarboð áðan...
Bear: já... og hvað?
Ónefnd: Svo lenti ég í veseni með far heim, þurfti að láta skutla mér, gerði svaka vesen...
Bear: Já... og hvað... og hvað???
Ónefnd: Svo kem ég heim, skamma xxxxx fyrir að vera búinn að týna bílnum... hélt hann hefði ekki borgað af honum eða eitthvað og Glitnir væri búinn að ná í hann...
Bear: Já... og hvað... og hvað???
Ónefnd: Ég fór á honum í matarboðið!!!
Bear: Búwahahahahahahahahahahahahahaha!!!!
Ónefnd: Líka...
sunnudagur, maí 08, 2005
Vissu þið gott fólk að...
--> Grínarinn "Weird" Al Yankovic fékk Bachelor-gráðu í arkítektúr árið 1981--> Það eru um það bil tíu milljónir steina í Empire State byggingunni
--> Séð frá geimnum er Las Vegas í Nevada bjartastur þeirra staða sem gerðir hafa verið af mönnum
--> Fílar eru ekki hræddir við mýs
--> Nýjasta málningin frá Hörpu Sjöfn er rósótt árabátamálning
--> Aðeins einn krókudíll hefur fundist í frárennsliskerfi New York borgar (1935)
--> Spínat inniheldur ekki meira af járnum en annað grænmeti (á hverju var þá Stjáni?)
--> Fullnæging svína stendur yfir í 30 mínútur (god damn you lucky pigs!)
--> Mjólk er góð
--> Vinsælasta nafn í heimi er Muhammad
--> Í Tennessee fylki er bannað með lögum að keyra sofandi
--> Höfrungar sofa með annað augað opið
--> Ég fer alltaf á fætur rétt áður en ég vakna
fimmtudagur, maí 05, 2005
Hjá Hannesi
Lærir maður ýmislegt skemmtilegt og nytsamlegt. Í einum áfanga hans, Stjórnmálaheimspeki, eru tvær bækur lesnar, báðar eftir hann sjálfan. Hann sýndi okkur einnig myndbandið Ísland á 20. öld vegna þess að hann samdi handritið ásamt öðrum spekingi. Myndbandið var þó ekki tengt efni áfangans en skemmtilegt glott kom á Hannesinn þegar myndir af Þór Jósefssyni, fyrrverandi herra Ísland, birtust. (heyrst hefur á göngum skólans að þeir geri stundum dodo)Við lestur bóka Hannesar rekst maður alltaf á skemmtileg innskot eða neðanmálsgreinar þar sem hann segir hina og þessa menn nánast vitleysingja fyrir hitt og þetta sem þeir hafa skrifað. Ekki þó með berum orðum, en hann eyðir miklu púðri í að færa rök fyrir því að sá sem við á hafi ekki hugsað málið til enda. Einnig er mikið um innskot er varða kynheigð eins og þetta dæmi úr bókinni Hvar á maðurinn heima?:
,,Sú bót var í máli, að í Sýrakúsu kynntist hann tvítugum sveini, Díóni, sem gerðist dyggur lærisveinn hans. (Platón átti það sammerkt með Sókratesi að hneigjast frekar til samneytist við unga, fríða og fylgispaka sveina en við konur.)"
Svo ekki sé minnst á þær nákvæmu lýsingar sem ber að fara eftir við ritgerðarskil hjá honum. Ég birti hér tvo liði, af heilum þremur A4 blaðsíðum, af reglum:
Snið
Prentað með geislaprentara á A-4 blöð
Forrit Microsoft Word
Hægri og vinstri spássíur 31,7 mm, efri og neðri spássía 25,4 mm, blaðsíðutöl fyrir miðju að neðan, 12,5 mm frá neðri brún
Lengd 5-10 bls., þ. e. 1.500-3.000 orð, alls ekki meira
Forðist tuggur
varðandi, notið heldur um
staðsettur, til staðar, notið heldur er
framkvæma rannsókn, notið heldur rannsaka
afgerandi, notið heldur mikilvægur, verulegur, úrslitaáhrif
uppbygging, notið heldur þróun, skipulagning, myndun
byggja, notið heldur leggja vegi, smíða brýr, reisa hús, hlaða stíflur
grundvöllur, notið heldur forsenda, skilyrði
yfirleitt, notið heldur jafnan, oftast, ósjaldan
Með þessu er ég ekki að segja að það sé slæmt að vitja tíma hjá Hannesi, þvert í móti, en hégómi hans er skondinn.
miðvikudagur, maí 04, 2005
Kosningar í Kanada...
...virðast ekki hafa neinn markverðan tilgang. Þú mætir á svæðið, skilar inn þínu atkvæði, en það skiptir engu máli. Atkvæðaseðli þínum verður eytt án þess að skila nokkru, kosningin er aðeins yfirhylming, þess vegna getur alveg eins valið þér aðferð við að eyða konsingarmiðanum sjálf/ur og gert það að tilgangi til að mæta á kjörstað.Here are some suggestions:
1) Rip it
2) Burn it
3) Use it as toilet paper
4) Roll it into a huge joint and smoke it
5) Eat it
6) Fold it into a crane
7) Fold it into a paper airplane and fly it out the window
8) Shove it up your nose
9) Dissolve it in acid
10) Make confetti out of it
11) Fold it into a dish (use it for peanuts, soy nuts, or as an ashtray)
Svo geturu náttúrulega bara étið miðan og hér eru ýmsar uppskriftir sem geta gert það spennandi... http://edibleballot.tao.ca/eat.html
Nei annars... bara að reyna að gera námið spennandi í lestri mínum fyrir Samanburðarstjórnmála próf...

