۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

fimmtudagur, maí 05, 2005

Hjá Hannesi


Lærir maður ýmislegt skemmtilegt og nytsamlegt. Í einum áfanga hans, Stjórnmálaheimspeki, eru tvær bækur lesnar, báðar eftir hann sjálfan. Hann sýndi okkur einnig myndbandið Ísland á 20. öld vegna þess að hann samdi handritið ásamt öðrum spekingi. Myndbandið var þó ekki tengt efni áfangans en skemmtilegt glott kom á Hannesinn þegar myndir af Þór Jósefssyni, fyrrverandi herra Ísland, birtust. (heyrst hefur á göngum skólans að þeir geri stundum dodo)

Við lestur bóka Hannesar rekst maður alltaf á skemmtileg innskot eða neðanmálsgreinar þar sem hann segir hina og þessa menn nánast vitleysingja fyrir hitt og þetta sem þeir hafa skrifað. Ekki þó með berum orðum, en hann eyðir miklu púðri í að færa rök fyrir því að sá sem við á hafi ekki hugsað málið til enda. Einnig er mikið um innskot er varða kynheigð eins og þetta dæmi úr bókinni Hvar á maðurinn heima?:
,,Sú bót var í máli, að í Sýrakúsu kynntist hann tvítugum sveini, Díóni, sem gerðist dyggur lærisveinn hans. (Platón átti það sammerkt með Sókratesi að hneigjast frekar til samneytist við unga, fríða og fylgispaka sveina en við konur.)"

Svo ekki sé minnst á þær nákvæmu lýsingar sem ber að fara eftir við ritgerðarskil hjá honum. Ég birti hér tvo liði, af heilum þremur A4 blaðsíðum, af reglum:

Snið
Prentað með geislaprentara á A-4 blöð
Forrit Microsoft Word
Hægri og vinstri spássíur 31,7 mm, efri og neðri spássía 25,4 mm, blaðsíðutöl fyrir miðju að neðan, 12,5 mm frá neðri brún
Lengd 5-10 bls., þ. e. 1.500-3.000 orð, alls ekki meira

Forðist tuggur
varðandi, notið heldur um
staðsettur, til staðar, notið heldur er
framkvæma rannsókn, notið heldur rannsaka
afgerandi, notið heldur mikilvægur, verulegur, úrslitaáhrif
uppbygging, notið heldur þróun, skipulagning, myndun
byggja, notið heldur leggja vegi, smíða brýr, reisa hús, hlaða stíflur
grundvöllur, notið heldur forsenda, skilyrði
yfirleitt, notið heldur jafnan, oftast, ósjaldan

Með þessu er ég ekki að segja að það sé slæmt að vitja tíma hjá Hannesi, þvert í móti, en hégómi hans er skondinn.

--------------------------------------------------