
...að í Noregi sé bannað að reykja á skemmtistöðum. Þar kemur fólk saman og þambar bjór í biðröðum!... annað hvort á leiðinni út að reykja, eða á leiðinni inn að ná sér í bjór. Þar sem bjór inniheldur ger, humla og önnur loftmyndandi efni hefur hann þau áhrif að fólk leysir vind í ómældu magni. Yfirleitt hefur það ekki verið vandamál, allavega ekkert sem maður hefur tekið eftir, en Þegar reykingarlyktin er ekki til staðar leggur um skemmtistaðina lykt sem á rætur sínar að rekja til gasmyndunnar í meltingarfærum þess fólks sem á staðnum er. Nú á dögunum áttu sér stað miklar umræður um bönn við reykingum á kaffihúsum og skemmtistöðum hér á landi. Í tilviki skemmtistaðanna og öldurhúsanna er ekki í vegi að spyrja sig hvort maður vilji - prumpulykt eða reykingarlykt, sérstaklega þar sem að við erum mikið bjórdrykkjufólk þegar út á lífið er komið. Þá er nauðsynlegt fyrir okkur, sem erum knattspyrnuunendur og bjóradrykkjumenn, að spyrja okkur, og hvern annan, hvort að við viljum sitja inn á sportbar fullum af karlmönnum og reykingarlykt eða karlmönnum og prumpulykt. Fyrir mig kýs ég að mæla gegn reykingarbanni á skemmtistöðum á þeim forsendum að reykingarlyktin er bara betri en endaþarmslykt sveittra karlmanna.