mánudagur, október 17, 2005
Kæri síðulesari
Það sem síðuhaldari vildi helst vita í dag er hvort að upplýsingar þær er koma fram á umbúðum Bónus salernispappírs séu í raun sannar. Ég gerði þau grundvallar mistök nefninlega klukkan 17:31 í dag að fara án lesefnis til verka er kennd eru við taflmennsku. Þá tók ég að lesa utan á umbúðir þeirra Bónusfeðga og þar kemur fram: "Endurunninn náttúruhvítur pappír 200 blöð". Í mínum þungu þönkum tók ég að efast stórkostlega um sannleiksgildi þessarra upplýsinga. Það hvarflaði að mér að kasta út einni rúllu og hreinlega telja blöðin. Þegar verki mínu var lokið og þeim þankagangi sem því fylgdi ákvað ég þó að láta það eiga sig og athuga heldur hvort að einhver þarna úti er tilbúinn að telja blöðin eða jafnvel hvort að einhver er búinn að því.Tilvitnun dagsins: "I think we agree, the past is over"
--- George W. Bush, 10. maí, 2000.

