۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

þriðjudagur, október 25, 2005

Þrífur þú hliðarnar á þínum bíl?

Ég veit ekki með ykkur en ef það er einhver sem lætur mér líða eins og smástrák þá er það tannlæknirinn minn. Mjög indæl kona hún Guðný, en þegar spurningin kemur þá skyndilega líður manni eins og playmokalli fyrir framan þessa annars vinalegu konu sem verður allt í einu risastór. Ég veit náttúrulega að ég er búinn að vera óþekkur - og veit að hún veit, um leið og hún fer með litla spegilinn sinn af stað - og því er engin undankomuleið. "Ertu búinn að vera duglegur að nota tannþráð?" - Hugsun: "kannski tekur hún ekki eftir því, á ég ekki bara að ljúga?" Nei, sem betur fer lýg ég yfirleitt ekki vegna þess að hún fattar það alltaf um leið og ég opna, þótt ég hafi notað tannþráð þrisvar kvöldið áður. Ég reyni alltaf að réttlæta letina í mér fyrir henni með því að segja að stundum sé ég alveg rosalega duglegur í langan tíma en svo bara gleymi ég því. Eða með einhverjum öðrum afsökunum, hún hefur náttúrulega heyrt þær allar áður og glottir bara við tönnina sína.

Um leið og maður svo opnar munninn þá koma spurningarnar allar - hvernig gengur í skólanum, hvaða fögum ertu í - og bara yfir höfuð það sem krefst svara. Stundum langar mig hreinlega að taka slefsuguna úr munninum á mér og spyrja hvort að spurningarnar geti ekki beðið rétt á meðan... Jæja svo kemur að kveðjustund, ég hendi í hana tíu þúsundkalli, fyrir að fá að sitja í stólnum fína í stundarfjórðung, og svo koma kveðjuorðin: "Mundu bara að þú þarft að nota þessar jafn lengi og þú lifir" og "Þú myndir aldrei þvo bílinn þinn bara að framan og aftan er það?" Eeehe, nei herra tannlæknir. "já, tannþráðurinn hreinsar hliðarnar á tönnunnum þannig að vertu duglegur" Ehhhe... jaaá ég lofa... ehh... bless bless.

Tilvitnun dagsins: "It is after you have lost your teeth that you can afford to buy steaks."
--- Pierre Auguste Renoir

--------------------------------------------------