laugardagur, október 29, 2005
Samsæriskenning dagsins!
Getur verið? getur hugsanlega verið? að annar þeirra sem gerir tilkall til fyrsta sætis Sjálfstæðisflokksins til borgarstjórnarkosninga sé að villa á sér heimildir??? Minnst hefur verið á opinberlega að færslur hans séu tímasettar seint og því sé Teini Mart svolítill nátthrafn. Kannski er svona mikið að gera hjá honum eins og fram hefur verið haldið en ég leit á síðu hans í dag og kom þá auga á nokkuð sérstakt... það er að póstar hans virðast birtir á einkennilega svipuðum tímum. Nú vitum við það öll, sem bloggum, að hægt er að ráða dagsetningu og tíma birtingu bloggs - það er við getum ráðið því hvernig það birtist lesendum - hvaða dag og tíma póstur er skrifaður. Því tók ég saman tímasetningar og fjölda á þeim bloggum sem Gísli hefur birt:Fjöldi= 5 - klukkan - 00:00
Fjöldi= 6 - klukkan - 01:01
Fjöldi= 3 - klukkan - 02:02
Fjöldi= 1 - klukkan - 10:10
Fjöldi= 1 - klukkan - 11:11
Fjöldi= 2 - klukkan - 12:12
Fjöldi= 2 - klukkan - 17:17
Fjöldi= 2 - klukkan - 18:18
Fjöldi= 1 - klukkan - 21:21
Getur verið Gísli hafi tekið það til sín að athugasemdir hafi verið gerðar við tímasetningar blogga hans? Og getur þá einnig verið að Gísli Marteinn sé að setja eigin tímasetningar á blogg sín? Þá er ekki annað að sjá að Teini sé svolítið hrifinn af tölum sem ríma... já eða bara hreinum og fallegum tölum? Það verður gaman að sjá, ef litli strákurinn verður borgarstjóri, hvort að summa Reykjavíkurborgar verður einhver falleg tala sem rímar þegar hann hefur látið greipar sínar sópa...
Tilvitnun dagsins: "The important thing is not to stop questioning"
--- Albert Einstein

