fimmtudagur, október 20, 2005
Ummm...
Samkepnni vs. Einokun. Afskipti eða ekki. Hvað á að gera við fákeppni og hringamyndun? Á að gera eitthvað eða mun höndin sem enginn sér sjá um þetta? Endar ekki alltaf með því að stóri fiskurinn étur þann litla? Er það þá í lagi - eða þarf að koma í veg fyrir það?Veit ekki af hverju, en ég þoli ekki þegar nöfn eru þýdd í fræðibókum! Manni er gefið nafn og það er, að mínu mati, ekki hægt að þýða það yfir á annað tungumál - hvorki að hluta til né í heild. Frederich von Hayek heitir ekki Friðrik von Hayek. David Richardo heitir ekki Davíð Richardo. Paul McCartney heitir ekki Páll og forseti Bandaríkjanna heitir svo sannarlega ekki Georg Runni.
Tilvitnun dagsins:
"Þriðji fiskimaður: Formaður, ég vildi ég vissi hvernig fiskarnir lifa í sjónum.
Fyrsti fiskimaður: Nú eins og menn á landi; þeir stóru éta þá smáu."
--- William Shakespeare (Vilhjálmur Hristingspera; Shakes-peare); Períkles

