۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

miðvikudagur, nóvember 23, 2005

Skjár einn...

...klúðraði illa Herra Ísland keppninni. Ég sá hana nú ekki alla sem betur fer en restina sá ég og þá kom í ljós að einn þátttakendanna átti aldrei möguleika á að sigra. Hann gleymdist nefninlega og kom aldrei fram í öll þau skipti sem símakosningin var kynnt. Það var ekki fyrr en í lokin þegar búið var að loka fyrir símakosninguna sem að það var uppgötvað að hann hafði gleymst greyið. Súrt að vera búinn að eyða milljónum í brúnkukrem og stera og eiga svo ekki einusinni möguleika á sigri. Sigrún og þessi Dressman-kall voru líka furðuleg á skjánum, mjög erfið og náðu ekki að hefja þessa keppni upp - enda líklega ógjörningur.

(Meðfyljgandi mynd er ótengd atburðum keppninnar)

föstudagur, nóvember 11, 2005

Teddy´s bear

Theodore Roosevelt þótti einkar viðkunnanlegur maður, að einhverja mati vegna ungleika hans, en hann er yngsti maður sögunnar til að gegna embætti Bandaríkjaforseta. Hann varð fyrsti forsetinn til að hljóta friðarverðlaun Nóbels og hætti sem forseti eftir átta ára setu 1909, þá fimmtugur. Roosevelt var mikill persónuleiki og skrifaði bækur, stundaði veiðar og var umfram allt vel liðinn. Eftir að hann lét af embætti 1909 fór hann í ársfrí til Afríku að veiða.

Teddy, eins og hann var gjarnan kallaður var staddur á veiðum árið 1902 í Mississippi. Hann og félagar hans höfðu ekki komist í tæri við nein vilt dýr þannig að Roosevelt, sem ekki var talinn mjög þolinmóður maður, gafst upp og hélt til búða. Félagar hans fundu síðar björn en Teddi hafði krafist þess að fá fyrsta skotið vegna þess að hann þurfti að fara fyrr en hinir. Þeir bundu því björnin og náðu í Tedda. Þegar hann kom á staðinn neitaði hann að drepa björninn vegna þess að honum þótti það ekki sangjarnt dráp og hlífði birninum.

Þrír blaðamenn voru á svæðinu og því var þetta á forsíðum blaðanna dagana eftir. Einhver teiknimyndagaur teiknaði svo atburðinn og alltaf þegar minnst var á Tedda teiknaði hann lítinn knúsulegann bangsa með honum. Búðareigandur sáu myndir hans og hófu að framleiða Teddy´s bears. Einn þeirra fékk leyfi Rosevelt til að framleiða bangsan hans Teddy´s og innan árs var sá hinn sami búinn að loka litlu sjopunni sinni og búinn að koma á fót leikfangafyrirtækjum sem heita "Ideal Novelty" og "Toy company" og eru með stærstu leikfangafyrirtækjum í heiminum í dag.

Uppruna "Teddy´s bear" sem við þekkjum sem "teddy bear" eða "bangsa" er sem sagt hægt að rekja til 26. forseta Bandaríkjanna og knúsum og kyssum hann áður en við förum í háttinn. "Bangsi besta skinn" hlýtur þá að vera kominn af George W. Bush eða kannski "Chuckie"

Tilvitnun dagsins: “Speak softly and carry a big stick; you will go far”
--- Theodore Roosevelt (slagorð hans í utanríkismálum)

miðvikudagur, nóvember 09, 2005

Húsráð Rauða Djöfulsins!

Æj æj æj!!! Eldaðiru hamborgara á sunnudaginn? Ástu þig í óvit þannig að þú hafðir ekki burði til að ganga frá? Skildiru allt eftir á borðinu, niðurskorið grænmeti, óhreina pönnu og svo framvegis? Ef svo er, skaltu ekki örvætna. Fyrst og fremst ekki hrökkva í sundur! Andaðu rólega því "Húsráð Rauða Djöfulsins" er með ráð við þessu.

Afleiðingar ofáts geta verið hörmulegar. Ein þeirra er að þurfa að takast á við uppvaskið einhverjum dögum eftir að maturinn var eldaður. Nú ef aðstæður eru þannig að þú kemur inn í eldhús þitt og sérð að allt er á hinum endanum skaltu gera eftirfarandi.

Ef haugurinn í eldhúsinu er eftir maka, sambýlismann eða túrista, og þú fékkst ekki neitt að borða, skaltu nálgast viðkomandi og hóta tafarlaust lífláti. Ef viðkomandi þráast við og neitar enn að ganga frá, skal hótun framfylgt án umhugsunar og miskunnarlaust. Ef þú hins vegar fékkst að borða, eða eldaðir fyrir þig sjálfan skaltu takast á við afleiðingarnar.

Nú skal varast að fara ekki beint að vaska upp. Það getur haft hörmulegar afleiðingar vegna þess að matarleifarnar hafa komið sér rækilega fyrir og eru ekki á þeim buxunum að fara. Í staðinn skal teygja hendina ofan í vaskinn, sem væntanlega er fullur af leirtaugi eins og á öllum venjulegum heimilum, og setja tappan í. Vatn skal látið renna í vaskinn og hann fylltur. Enn og aftur skal vara við því að fara beint að vaska upp. Eina sem það hefur í för með sér er tómur uppþvottalagabrúsi, brotið leirtau, almenn óhamingja og jafnvel ákæra fyrir líkamsárás.

Nú skal allt, sem eitthvað er fast á, sett í vaskinn. Dæmi: Skornar gúrkur, sem hafa verið á diski í tvo daga, verða óviðráðanlegar vegna uppgufunar þar sem gúrkur eru 98% vatn. Þær eru orðnar þurrar og líta þá út sem grænn hringur með ljósgrænum kjarna og engu líkara enn þær séu teikning sem var á leirtauinu. En látið ekki blekkjast. Þetta eru safaríku gúrkurnar sem þú skarst niður einhverjum dögum áður. Þetta er óviðráðanlegt, nema með því að henda disknum í vaskinn, varlega þó, sem fullur er af vatni. Hann, ásamt öðru óhreinu, skal látið ofaní vaskinn og snúa sér að öðru í 24 klukkustundir.

Nú er liðin sólahringur og skal þá hefja uppvaskið með bros á vör. Allur óþverrinn sem var eins og rifflur og teikningar á leirtauinu rennur nú auðveldlega af. Þessu næst skal hringt á lögregluna, ef morð hefur verið framið, ef ekki skal kasta af sér svuntunni, valhoppa inn í stofu og kasta sjálfum sér svo hamingjusamur(söm) í sófan og njóta þess að vera til.

Ef þú ert með spurningu sem þú heldur að "Húsráð Rauða Djöfulsins" geti leyst, sendu hana þá á mailið: bab3@hi.is

Húsráð dagsins: "Á morgun segir ekki sá lati, heldur sá skynsami"
--- Björn Ásgeir Björgvinsson (sem Rauði Djöfullinn)

þriðjudagur, nóvember 08, 2005

Bjössi kvennagull!

Já, það á kannski ekki meira við mig úr þessu lagi "Bjössi á mjólkurbílnum" annað en kemur fram í nafni þessarrar færslu. Ósjaldan hefur maður samt hugsað út í það hvernig maður sjálfur kemur öðrum fyrir sjónir. Er ég töff, er ég glataður, er ég sætur, ljótur, fyndinn, heimskur, gáfaður, virðingaverður, ómerkilegur, ómótstæðilegur eða mótstæðilegur og svo framvegis. En í dag sá ég hvernig ég kem fólki fyrir sjónir. Jónas Guðnason (þótt hann sé harla óvenjulegur) ritaði: "Björn Ásgeir og Wes Brown Krullur og með furðulegt hár, þegar þeir ætla að sparka í boltan veit maður aldrei hvað getur gerst. Þekkt kvennagull". Skítt með fótbolta kommentið, ég veit betur. En það sem staðfestir áralangt efasemdatímabil, síðan stelpurnar í gaggó gátu ekki séð af mér, er síðasta setningin. Ég skildi þetta aldrei, hvað dró þær svona að mér, en nú sé ég þetta allt deginum ljósara. Takk Jónas.

Ég svaraði þessum ummælum Jónasar, sem snérust um að líkja Hamars leikmönnum við United leikmenn, góðlátlega svona: ,,Þessi umræða kom nú bara upp þegar við, nokkrir félagar, horfðum á United vinna Rússnesku þvottavélina. Haft var á orði að það væri örugglega fínt að slá golfbolta af hausnum á Brown. Þá sagði ég ,,jáh hann er flottur" og rendi getnaðarlegum fingrum mínum gegnum röffið á hausnum á mér. Þá sagði sá sami að það væri örugglega fínt á mér líka, en niðurstaðan varð sú ég væri heldur meira svona útí heavy röff, ekki eins og Brown sem klárlega flokkast undir fairway." Ennþá að minnstakosti.

Tilvitnun dagsins: "Björn Ásgeir, þekkt kvennagull"
--- Jónas Guðnason, matarmálaráðherra.

mánudagur, nóvember 07, 2005

Skemmtilegri glósur


Ég fékk glósur úr tveimur áföngum frá Gunnari "bróður" mínum í fyrra, sem væri að sjálfsögðu ekki frásögufærandi, nema fyrir þær sakir hvað þær gera námið skemmtilegt. Ég ætla hér að grípa niður á nokkrum stöðum í glósunum og birta nokkrar beinar tilvitnanir úr þeim:

--> 3. Social intent. Frelsa manninn. Losa úr efnahagslegum viðjum. Lögmál skortsins úr sögunni. Öll dýrin í skóginum eru vinir.

--> Ríkisstjórnarmynstur í Svergass

--> 9. MARZ
árið 1984 kom upp vesen á milli Thatchers og námuverkamanna. Allt var lagt undir. Ef Iron Maiden myndi vinna væri það sigur fyrir hana, en ef verkamennirnir ynnu þá væri það enn einn ósigur flokksins. Thatcher vann svona

--> DANADRUSLURNAR

--> 1. Kúltur í Bretlandi að kunna ekki vel við meginlandið. Þeir eru óvinir. Almenn tortyggni er áberandi. Thatcher – Öll vandræði stafa af meginlandinu en Bretar hafa bjargað öllum alltaf allsstaðar.
2. Breska samveldið áttu sitt heimsveldi. Efnahagsleg samvinna milli samveldina og hagsmunir gátu rekist á dæmi Landbúnaður. Nýja- Sjáland með kjötið sitt o.s.frv.
3. Special realationship við USA. Samvinna þeirra er svo falleg og góð. GOOOOOOOD SAVE THE FUCCCCCCKING QUEEEEEEEEEEEEEENNNNNNNNN. Okkar vinir eru ekki Froskarnir eða Þjóðverjar,, nei það eru Yankeeeeeeeessssss.

--> Héraðaþingin þau kjósa efri deildina en í henni eiga sæti 75 þingmenn sem eru allir Ajax aðdáendur, og hefur hún takmörkuð völd (Lávarðadeildin)(frestandi völd)

--> 4. Litlu flokkarnir ekki með. Það eru bara fífl sem fá ekki að leika sér með í boltaleiknum, ÞAÐ VANTAR DÓMARA dæmið hahah.

--> STJÓRNARMYNSTRIN Í DANADRULLU.
Sjá töflu bls 80 í Norsku drullunni

--> Feb 21. Ég er með hreindýrasteik í rassinum og sýg sinnep úr endaþarmi á ferfætling.

Ef þið viljið heyra meira af þessum ágæta manni þá er hann í "Helvítismorgunþættinum" á X-inu alla daga og svo getur verið að ég setji inn fleiri skemmtilega punkta.

Tilvitnun dagsins: "Eina ráðið við frelsinu er meira frelsi"
--- Hannes H. Gissurarson (í tilefni ritgerðarskila hjá honum í dag)

laugardagur, nóvember 05, 2005

Blogg

Bloggarar
Bloggarar

föstudagur, nóvember 04, 2005

Gagnleg skrif

Gagnleg skrif

Tenglar

Tenglar
StjórnmálNámið
Íþróttir
Tónlist

miðvikudagur, nóvember 02, 2005

Til sölu...

Þessi klassíski beyki/melamí skápur, úr Rúmfatalagernum, er til sölu á Snorrabraut. Hann er lítið notaður og nánast ekkert annað hefur verið gert við hann en að horfa á hann. Hann er því ótrúlega vel með farinn og kostar nýr 25.000. Þar sem þessi er alveg eins og nýr eru litlar 10.000 krónur kosta kjör. Öll tilboð verða skoðuð, en þó engin undir 10.000. Áhugasamir hafið samband í síma: 8657035.

Tilvitnun dagsins: "Art is making something out of nothing and selling it"
--- Frank Zappa (1940-1993)

--------------------------------------------------