þriðjudagur, nóvember 08, 2005
Bjössi kvennagull!
Já, það á kannski ekki meira við mig úr þessu lagi "Bjössi á mjólkurbílnum" annað en kemur fram í nafni þessarrar færslu. Ósjaldan hefur maður samt hugsað út í það hvernig maður sjálfur kemur öðrum fyrir sjónir. Er ég töff, er ég glataður, er ég sætur, ljótur, fyndinn, heimskur, gáfaður, virðingaverður, ómerkilegur, ómótstæðilegur eða mótstæðilegur og svo framvegis. En í dag sá ég hvernig ég kem fólki fyrir sjónir. Jónas Guðnason (þótt hann sé harla óvenjulegur) ritaði: "Björn Ásgeir og Wes Brown Krullur og með furðulegt hár, þegar þeir ætla að sparka í boltan veit maður aldrei hvað getur gerst. Þekkt kvennagull". Skítt með fótbolta kommentið, ég veit betur. En það sem staðfestir áralangt efasemdatímabil, síðan stelpurnar í gaggó gátu ekki séð af mér, er síðasta setningin. Ég skildi þetta aldrei, hvað dró þær svona að mér, en nú sé ég þetta allt deginum ljósara. Takk Jónas.Ég svaraði þessum ummælum Jónasar, sem snérust um að líkja Hamars leikmönnum við United leikmenn, góðlátlega svona: ,,Þessi umræða kom nú bara upp þegar við, nokkrir félagar, horfðum á United vinna Rússnesku þvottavélina. Haft var á orði að það væri örugglega fínt að slá golfbolta af hausnum á Brown. Þá sagði ég ,,jáh hann er flottur" og rendi getnaðarlegum fingrum mínum gegnum röffið á hausnum á mér. Þá sagði sá sami að það væri örugglega fínt á mér líka, en niðurstaðan varð sú ég væri heldur meira svona útí heavy röff, ekki eins og Brown sem klárlega flokkast undir fairway." Ennþá að minnstakosti.
Tilvitnun dagsins: "Björn Ásgeir, þekkt kvennagull"
--- Jónas Guðnason, matarmálaráðherra.

