۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

miðvikudagur, nóvember 09, 2005

Húsráð Rauða Djöfulsins!

Æj æj æj!!! Eldaðiru hamborgara á sunnudaginn? Ástu þig í óvit þannig að þú hafðir ekki burði til að ganga frá? Skildiru allt eftir á borðinu, niðurskorið grænmeti, óhreina pönnu og svo framvegis? Ef svo er, skaltu ekki örvætna. Fyrst og fremst ekki hrökkva í sundur! Andaðu rólega því "Húsráð Rauða Djöfulsins" er með ráð við þessu.

Afleiðingar ofáts geta verið hörmulegar. Ein þeirra er að þurfa að takast á við uppvaskið einhverjum dögum eftir að maturinn var eldaður. Nú ef aðstæður eru þannig að þú kemur inn í eldhús þitt og sérð að allt er á hinum endanum skaltu gera eftirfarandi.

Ef haugurinn í eldhúsinu er eftir maka, sambýlismann eða túrista, og þú fékkst ekki neitt að borða, skaltu nálgast viðkomandi og hóta tafarlaust lífláti. Ef viðkomandi þráast við og neitar enn að ganga frá, skal hótun framfylgt án umhugsunar og miskunnarlaust. Ef þú hins vegar fékkst að borða, eða eldaðir fyrir þig sjálfan skaltu takast á við afleiðingarnar.

Nú skal varast að fara ekki beint að vaska upp. Það getur haft hörmulegar afleiðingar vegna þess að matarleifarnar hafa komið sér rækilega fyrir og eru ekki á þeim buxunum að fara. Í staðinn skal teygja hendina ofan í vaskinn, sem væntanlega er fullur af leirtaugi eins og á öllum venjulegum heimilum, og setja tappan í. Vatn skal látið renna í vaskinn og hann fylltur. Enn og aftur skal vara við því að fara beint að vaska upp. Eina sem það hefur í för með sér er tómur uppþvottalagabrúsi, brotið leirtau, almenn óhamingja og jafnvel ákæra fyrir líkamsárás.

Nú skal allt, sem eitthvað er fast á, sett í vaskinn. Dæmi: Skornar gúrkur, sem hafa verið á diski í tvo daga, verða óviðráðanlegar vegna uppgufunar þar sem gúrkur eru 98% vatn. Þær eru orðnar þurrar og líta þá út sem grænn hringur með ljósgrænum kjarna og engu líkara enn þær séu teikning sem var á leirtauinu. En látið ekki blekkjast. Þetta eru safaríku gúrkurnar sem þú skarst niður einhverjum dögum áður. Þetta er óviðráðanlegt, nema með því að henda disknum í vaskinn, varlega þó, sem fullur er af vatni. Hann, ásamt öðru óhreinu, skal látið ofaní vaskinn og snúa sér að öðru í 24 klukkustundir.

Nú er liðin sólahringur og skal þá hefja uppvaskið með bros á vör. Allur óþverrinn sem var eins og rifflur og teikningar á leirtauinu rennur nú auðveldlega af. Þessu næst skal hringt á lögregluna, ef morð hefur verið framið, ef ekki skal kasta af sér svuntunni, valhoppa inn í stofu og kasta sjálfum sér svo hamingjusamur(söm) í sófan og njóta þess að vera til.

Ef þú ert með spurningu sem þú heldur að "Húsráð Rauða Djöfulsins" geti leyst, sendu hana þá á mailið: bab3@hi.is

Húsráð dagsins: "Á morgun segir ekki sá lati, heldur sá skynsami"
--- Björn Ásgeir Björgvinsson (sem Rauði Djöfullinn)

--------------------------------------------------