föstudagur, nóvember 11, 2005
Teddy´s bear
Theodore Roosevelt þótti einkar viðkunnanlegur maður, að einhverja mati vegna ungleika hans, en hann er yngsti maður sögunnar til að gegna embætti Bandaríkjaforseta. Hann varð fyrsti forsetinn til að hljóta friðarverðlaun Nóbels og hætti sem forseti eftir átta ára setu 1909, þá fimmtugur. Roosevelt var mikill persónuleiki og skrifaði bækur, stundaði veiðar og var umfram allt vel liðinn. Eftir að hann lét af embætti 1909 fór hann í ársfrí til Afríku að veiða.Teddy, eins og hann var gjarnan kallaður var staddur á veiðum árið 1902 í Mississippi. Hann og félagar hans höfðu ekki komist í tæri við nein vilt dýr þannig að Roosevelt, sem ekki var talinn mjög þolinmóður maður, gafst upp og hélt til búða. Félagar hans fundu síðar björn en Teddi hafði krafist þess að fá fyrsta skotið vegna þess að hann þurfti að fara fyrr en hinir. Þeir bundu því björnin og náðu í Tedda. Þegar hann kom á staðinn neitaði hann að drepa björninn vegna þess að honum þótti það ekki sangjarnt dráp og hlífði birninum.
Þrír blaðamenn voru á svæðinu og því var þetta á forsíðum blaðanna dagana eftir. Einhver teiknimyndagaur teiknaði svo atburðinn og alltaf þegar minnst var á Tedda teiknaði hann lítinn knúsulegann bangsa með honum. Búðareigandur sáu myndir hans og hófu að framleiða Teddy´s bears. Einn þeirra fékk leyfi Rosevelt til að framleiða bangsan hans Teddy´s og innan árs var sá hinn sami búinn að loka litlu sjopunni sinni og búinn að koma á fót leikfangafyrirtækjum sem heita "Ideal Novelty" og "Toy company" og eru með stærstu leikfangafyrirtækjum í heiminum í dag.
Uppruna "Teddy´s bear" sem við þekkjum sem "teddy bear" eða "bangsa" er sem sagt hægt að rekja til 26. forseta Bandaríkjanna og knúsum og kyssum hann áður en við förum í háttinn. "Bangsi besta skinn" hlýtur þá að vera kominn af George W. Bush eða kannski "Chuckie"
Tilvitnun dagsins: “Speak softly and carry a big stick; you will go far”
--- Theodore Roosevelt (slagorð hans í utanríkismálum)

