۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

miðvikudagur, desember 21, 2005

Draumapóstur!

Ég fékk tölvupóst í dag sem hljóðaði svo:

Titill: Leonardo styrkur - úthlutun til þín!!

Komdu sæll Björn.

Þér er hér með úthlutað Leonardó styrk á næsta vormisseri.
Til lukku með það.
Get ég hitt þig fyrir jól?? eða milli jóla og nýjárs- best að við
hittumst og ræðum málin!!

Kær kveðja
Xxxxx X. Xxxxxxxxx
_____________________
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála
Institute of Public Management and Politics
http://www.stjornsyslustofnun.hi.is
Háskóla Íslands
University of Iceland
Odda 1. hæð
v. Sturlugötu
101 Reykjavík


Lykilorð í þessu eru: Brussel, 4 mánuðir, starfsnám.
Segi ykkur síðar hvað þetta þýðir í raun, verð að klára ritgerð fyrir tólf...

miðvikudagur, desember 14, 2005

Lúðurlakarnir, Frikki og Ásgeir á Snúlla-Bar!

Búinn í fjórum prófum af fimm, og fallinn í tvem. Þetta fær maður fyrir að ætla sér um of. Nú er bara eitt próf eftir og tvær ritgerðir, ekkert mál.

Fróðleikur fyrir Ólsara: Barinn í Hveragerði heitir Snúlla-bar af ástæðu. Snæbjörn, muniði eftir honum, ´79 árgerð var með okkur í grunnskóla eitthvað framan af. Já, hann á Pabba sem heiti Eyfi og er í Feðgunum, sem er stuðdúett og ballhjómsveit. Hann, pabbi snæbjörns átti Snúlla-bar og skýrði hann eftir syni sínum Snæbirni sem er kallaður Snúlli.

Próf eru fyrir páfagauka, þoli ekki fuglalestur. Mig langar í bjór! Hvað ætli þúsund kall sé mikið í hundapeningum?

mánudagur, desember 12, 2005

Conor Oberst

Jólaplatan í ár er platan "A christmas album" með einni af mínum uppáhalds hljómsveitum, Bright Eyes að nafni, með Conor Oberst í fararbroddi. Þetta er reyndar netplata en það er hægt að ræna henni á öllum helstu niðurhalssíðum hins yndislega internets. Ég mæli líka með "I´m wide awake, it´s morning" plötunni, með sama listamanni, en hún er algjört meistaraverk. Ég er að ná mér í aðra plötu með þeim sem heitir "Digital ash in a digital urn" og ekki hægt að segja annað en að miklar væntingar sé til staðar.

Tilvitnun dagsins: "It comes down to the songs, and these are the most intense he's ever written, one instant classic after another."
-- Rolling Stone um plötuna "I´m wide awake, it´s morning".

föstudagur, desember 09, 2005

,,How fortunate for leaders that men do not think"

Stefán Ólafsson fær hrós fyrir að birta skýrslu sem ekki "hentar" ráðamönnum landsins. Þeir taka henni hins vegar með stakri ró og halda því fram að hún sé meingölluð, þeir viti betur. Þrátt fyrir að hann sé prófessor sem er búinn að vinna við rannsóknir og samanburð landa í yfir aldarfjórðung og hafi svarað allri gagnrýni skýrt og örugglega í fréttaskýringaþáttum. Hvort á maður að trú óháðri skýrslu virts prófessors eða stjórnmálamanni sem ver gjörðir sínar með kjafti og klóm?

Árni Magnússon fær samúð mína fyrir þá stöðu sem hann búinn að koma sér í, eða ráðgjafar hans. Enn og aftur spyr landinn hvort ekki sé rétt að stjórnarmnenn taki pokan sinn ef þeir brjóta af sér. Jú, segja margir og aðallega Steingrímur J. Við vitum hins vegar að það er ekki venjan í okkar lýðræðisríki, þó alls staðar annarsstaðar sé það gefið ef menn kosta ríkið milljónir eða vinna gegn því sem þeir standa fyrir. Mér finnst það hins vegar ekki eiga við í þessu máli, Árni greyið fór eftir lögmenntuðum ráðgjöfum sínum sem höfðu rangt fyrir sér, alla vega fyrir Hæstarétti. Maður er ef til vill orðinn meðvirkur viðmiðum stjórnmálamanna, en ég held að samkennd mín til Árna eigi rétt á sér þó hann sé úr Hveragerði.

--------------------------------------------------