۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

föstudagur, desember 09, 2005

,,How fortunate for leaders that men do not think"

Stefán Ólafsson fær hrós fyrir að birta skýrslu sem ekki "hentar" ráðamönnum landsins. Þeir taka henni hins vegar með stakri ró og halda því fram að hún sé meingölluð, þeir viti betur. Þrátt fyrir að hann sé prófessor sem er búinn að vinna við rannsóknir og samanburð landa í yfir aldarfjórðung og hafi svarað allri gagnrýni skýrt og örugglega í fréttaskýringaþáttum. Hvort á maður að trú óháðri skýrslu virts prófessors eða stjórnmálamanni sem ver gjörðir sínar með kjafti og klóm?

Árni Magnússon fær samúð mína fyrir þá stöðu sem hann búinn að koma sér í, eða ráðgjafar hans. Enn og aftur spyr landinn hvort ekki sé rétt að stjórnarmnenn taki pokan sinn ef þeir brjóta af sér. Jú, segja margir og aðallega Steingrímur J. Við vitum hins vegar að það er ekki venjan í okkar lýðræðisríki, þó alls staðar annarsstaðar sé það gefið ef menn kosta ríkið milljónir eða vinna gegn því sem þeir standa fyrir. Mér finnst það hins vegar ekki eiga við í þessu máli, Árni greyið fór eftir lögmenntuðum ráðgjöfum sínum sem höfðu rangt fyrir sér, alla vega fyrir Hæstarétti. Maður er ef til vill orðinn meðvirkur viðmiðum stjórnmálamanna, en ég held að samkennd mín til Árna eigi rétt á sér þó hann sé úr Hveragerði.

--------------------------------------------------