fimmtudagur, janúar 19, 2006
Ferðin!
Lítið að frétta af ferðinni annað en það að ég fer ekki til Brussel. Það var stofnun að nafni International Non-violence Organisation og ég sótti um sem aðstoðamaður í stefnumótun. Sex aðilar sóttu um frá öðrum þjóðum örugglega allir á mastersstigi. Ég fékk það starf ekki en var samt eiginlega búinn að afskrifa þá stöðu, bæði af því að ég fékk þá tilfinningu að þeir væru bara að leita af ódýru vinnuafli og af því að mig langar meira til Búlgaríu.Ég er með stöðu í Litháen sem ég get farið í, núna þess vegna, en ég á eftir að fá svar frá Búlgaríu. Í Litháen er um að ræða Alþjóða Viðskiptastofnun en starfsheitið veit ég ekki ennþá. Ég fæ líklega svar frá Búlgaríu fyrir helgi og er tengiliðurinn þar í viðræðum við nokkrar opinberar stofnanir sem og nokkrar Alþjóðlegar stofnanir ótengdar ríkinu. Ég fer utan í rúma þrjá mánuði, hvort sem það verður Litháen eða Búlgaría, einhverntíman í febrúar. Um leið og ég fæ svar frá Búlgaríu þá veit ég hvert ég fer og þá er bara að finna ferðamáta og íbúð og svo bara gerast heimsborgari.
Tilvitnun dagsins: "Certainly, travel is more than the seeing of sights; it is a change that goes on, deep and permanent, in the ideas of living."
--> Miriam Beard

