laugardagur, febrúar 18, 2006
Jæja
Nú fer þetta að skella á. Klukkan er núna 03:30 og ég HELD að ég sé búinn að ganga frá öllu. Ég er búinn að fara í bólusetningar. Ég fékk bólusetningu við stífkrampa, barnaveiki, mænuveiki eða mænusótt, man ekki hvað það heitir, og svo við lifrarbólgu A og B. Ég er búinn að tryggja mig, er með fjórar milljónir í sjúkratryggingu, tvöhundruð þúsund í farangurstryggingu og eitthvað í líftryggingu. Betra að vera öruggur fyrst að fuglaflensan er annarsvegar - þótt þessi trygging myndi varla hjálpa manni í gegnum það! Þarf allavega ekki að borga mikið ef ég lendi í einhverskonar óhappi - allavega á pappírunum en svo kunna þau nú að sneiða hjá þeim þessi Hel****s tryggingarfélög guð blessi þau. Einn og hálfur í að ég leggi af stað á flugvöllinn og lending í Köben klukkan 11:40. Þar tekur Jónas höfðingi á móti mér og sýnir mér það helsta á met tíma áður en við dettum inn á knæpu, fáum okkur öl og horfum á seinni hálfleik í bikarleik Djöflanna og Bítlanna. Klukkan 16:15 flýg ég svo í suð-austur í átt að Svarta Hafinu og lendi í Sofia, höfuðborg Búlgaríu, klukkan 19:50 að staðartíma. Það mun ég dvelja á hóteli fínu(herbergið á myndinni) fram á mánudagsmorgun og taka þá lest til borgarinnar Sevlievo.
Veit ekki hvort að til séu tölvur eða internet í þessu fyrrum hluta Sovéska stórveldisins en er þó nokkuð viss um að svo sé og mun rita ferðasögu og annað sem á mína daga drífur við fyrsta tækifæri.
Þangað til segi ég bara góða ferð og Довиждане (borið fram: dovizhdane) sem þýðir jú "bless" á Búlgörsku.

