miðvikudagur, febrúar 01, 2006
Planið
Ég flýg út nítjánda eða tuttugasta, það fer eftir því hvenær ég fæ flug. Ég fer aleinn og verð í höfuðborginni Sofia í landkynningu í tvær vikur. Eftir það fer ég í 25.000 manna borg sem kallast Sevlievo og er í klukkutíma lestarferð frá Sofia. Þar mun ég vinna í einhverri opinberri æskulýðsstofnun í einn og hálfan mánuð. Svo fer ég aftur til höfuðborgarinnar þar sem búa 1.300.000 manns og vinn þar í "National Association of Municipalities of Republic of Bulgaria" eða Landssambandi sveitarfélaga lýðveldis Búlgaríu. Það sem eftir verður tímans vinn ég þar og kem heim í lok maí og verð sem sagt í ca. þrjá og hálfan mánuð. Í millitíðinni, eða 18. mars, flýg ég svo til Brussel og verð þar í viku ásamt stjórnmálafræðinemum í námsferð á vegum Evrópusambandsinns og Háskóla Íslands, ég flýg svo aftur til Búlgaríu 25. mars.Heimasíða landssambands sveitafélaga Búlgaríu
Nýja síðan
Hvað gerist þar?

