föstudagur, mars 17, 2006
Brussel baby!
Vaknaði klukkan sex í morgun og skreið uppí rútu sem var á leiðinni til höfuðborgar Búlgaríu. Þar var ég búinn að panta mér hótel herbergi fyrir nóttina og tjékkaði mig þar inn um tíu leitið. Þegar það var búið stökk ég náttúrulega af stað og gekk, og gekk, og gekk, og gekk. Þegar ég var búinn að labba í sjö klukkutíma, með matarhléum, renndi ég mér aftur á hótelið og lagði mig í klukkutíma. Þess má geta að ég smakkaði í fyrsta skipti á ævinni Dunkin Donuts og fékk mér vestrænan hamborgara er kenndur er við McDonald. Það var einstaklega gott að fá mat sem að maður kannast við því að það er ekki mikið um það í Sevlievo. Þegar ég vaknaði aftur fór ég út að éta, skrifaði þennan pistil og svo er planið að fara að sofa.
Í fyrramálið þarf ég að vakna klukkan fimm, gera upp hótelið og taka leigubíl út á flugvöll. Þar bíður mín eðal flugvél frá Bulgarian Air sem mun þeyta mér yfir meginlandið og henda mér út yfir Amsterdam. Ég lendi þar klukkan níu að staðartíma og hef þá þrjá tíma til spillis þangað til að kollegar mínir úr stjórnmálafræðinni og hún Halldóra mín lenda. Klukkan 14:00 er svo áætlað að fara með rútu til Brussel höfuðborgar Evrópusambandsins.
Í vikunni munum við svo heimsækja ýmsar stofnanir eins og t.d. Evrópuþingið, Evrópuráðið, EFTA, NATO og sendiráð Íslands svo eitthvað sé nefnt. Við eigum þó það sem eftir verður laugardagsinns og sunnudaginn fría þannig að það verður gengið, og gengið, og gengið, og gengið og tekið myndir:)