۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

laugardagur, mars 11, 2006

Já eða nei?

Hérna er það þannig að fólk hristir hausinn þegar það segir já, eða da, og kinkar kolli þegar það segir nei. Þetta getur verið mjög villandi þegar maður er að láta reyna á þau fáu orð sem maður kann í málinu. Maður spyr að einhverju og það er bara hrist hausinn eins og maður sé einhver hálviti. Ég hef oft lent í því að ganga út úr verslunum af því að ég hef haldið að viðkomandi hafi ekki átt það sem ég var að biðja um, eins og til dæmis inneign í síman minn. Ég er núna hættur að taka mark á höfuðhreyfingum og einbeiti mér bara að því að hlusta á svarið.

Ég talaði um þetta við tvær stelpur hérna og sagði þeim hvað mér finndist þetta skrítið. Þær hristu hausinn og sögðu já við höfum lesið um að fólk geri þetta í sumum löndum. Þá sagði ég, en þið gerið þetta, og eruð að því núna! Þær vildu nú ekki viðurkenna það en þegar leið á samtalið fóru þær að taka eftir þessu hjá hvor annarri og hlógu mikið. Þetta er greinlega eitthvað ómeðvitað en skrítið að taka ekki eftir því sjálfur. Þetta er samt ekki algilt hérna en flestir gera þetta. Það virðist samt fara eftir spurningunni, eða bara manneskjunni, og greinilega eru ekki allir meðvitaðir um þessa óvenjulegu líkamstjáningu. Ég hef þó gripið sjálfan mig að því að hafa smitast af þessu þannig að ekki verða hissa þó að nei þýði já hjá mér þegar ég kem aftur í vestræna siðmenningu.

Þetta er Björn sem talar frá Sevlievo

--------------------------------------------------