miðvikudagur, mars 15, 2006
Veliko Tornovo
Síðasta sunnudag brá ég undir mig betri fætinum og fór í smá ferðalag. Ég vaknaði klukkan 7:30, á sunnudegi, og fór niður á rútustöð. Eftir smá hark með handabendingum og tilheyrandi andlitsmerkjum náði ég að kaupa mér miða til Veliko Tornovo sem er 200.000 manna borg í um hálftíma akstur frá Sevlievo.
Þegar ég kom þangað ákvað ég að ganga aðeins áður en ég tæki leigubíl í miðbæinn. Ég gekk í um það bil korter og áður en ég vissi af var ég kominn í miðbæinn. Það var fullt af verslunum en þær voru flestar lokaðar, klukkan var jú bara tíu á sunnudagsmorgni. Ég gekk áfram og varð var við fullt af flottum minnisvörðum og byggingum. Borgin er öll í brekkum og eiginlega bara fjöllum þannig að útsýnið var rosalegt þó að skyggnið hafi ekki verið mjög gott.
Fyrst að ég var kominn í miðbæinn hélt ég bara áfram göngu minni og vonaðist til þess að sjá í kastalan sem ég ætlaði mér að skoða. Þegar ég var svo búinn að ganga í í smá stund sá ég glitta í hann og fikraði mig nær honum með hæsta punktin á honum, kirkjuna, sem leiðarvísir. Hann var svakalega flottur og ég tók fullt af myndum. Það var slæmt skyggni þannig að myndirnar voru eftir því. Það var mikil þoka og rigning á köflum. Ég fer aftur í Veliko Tornovo þegar Dóra kemur og tek betri myndir af honum, og úr honum þá, vona bara að það verði betra veður.
Ég er búin að setja inn myndir úr ferðinni miklu og einnig myndir frá Martenitza hátíðinni og þjóðhátíðardegi Búlgaríu sem er 3. mars.