۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

sunnudagur, apríl 09, 2006

Brussel

Lenti í Amsterdam laugardaginn 18. mars klukkan 09.00 að staðartíma. Íslendingarnir mínir voru væntanlegir klukkan tólf þannig að ég hafði tíma til spillis þangað til. Ég gekk af göflunum um Schipol flugvöllin, mátaði tré skó og smakkaði bjór. Klukkan tíu mínútur í eitt kom hópurinn loksins en ég hitti þó bara Dóru þá í gegnum glervegg. Það var frekar undarlegt að hittast svona og geta ekki faðmast heldur bara standa þarna sitthvoru megin við gler og reyna að eiga samskipti. Hálftíma seinna komust þau í gegn eftir einhverjar Iceland express tafir. Við hoppuðum svo upp í rútu og héldum til Brussel.

Eftir þriggja tíma rútuferð yfir hóla og hæðir Amsterdam lentum við á hótelinu okkar. Þar var þrifið af sér ferðaviðbjóðinn og farið í göngutúr. Við renndum okkur á fyrsta stað sem við sáum og smökkuðum ýmsar tegundir af belgískum bjór enda Brussel nefnd höfuðborg bjórsins. Um kvöldið fórum við öll tuttugu og tvö út að borða og svo enduðum við á salsa stað. Þó ég sé nú kannski ekki sleipasti dansarinn tók ég nokkur spor með Dóru en afleiðingarnar voru þrjár belgískar stelpur með glóðurauga. Á sunnudeginum var gengið yfir sjó og land og skoðað höfðuborg Evrópusambandsins og svo farið á Írskan pöbb um kvöldið.

Vikan var svo þannig að við fórum á ráðstefnur á daginn sem enduðu yfirleitt með kokteilboðum seinni partinn. Við fórum t.d. í kokteilboð heim til fastafulltrúa Íslands í NATO. Eftir kokteilboðin var farið út að borða skoðað borgina og skemmt sér frameftir.

Setning ferðarinnar var án efa þegar ónefnd stelpa ætlaði að spurja hvort að Líbanskur veitingastaður hefði kokk í stíl og sagði “Do you have a libanon cock?”

--------------------------------------------------