۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

laugardagur, apríl 15, 2006

Teinótti Marokkóbúinn

Ég og Dóra þurftum að fara á undan hópnum í Brussel til Amsterdam af því að okkar flug var fyrr en þeirra. Okkur var sagt að það gengu lestir á klukkutíma fresti til Amsterdam þannig að við fórum á lestarstöðina klukkan þrjú á aðfaranótt laugardags. Við tókum leigubíl og lentum á viðkunnalegum marokkóbúa með teina sem setti upp skrítin svip þegar við sögðum honum að flugið okkar væri klukkan sjö í Amsterdam. Hann bauð okkur að keyra okkur þangað fyrir 200 evrur og lét okkur hafa númerið sitt ef við myndum lenda í vandræðum. Þegar við komum svo á lestastöðina var okkur sagt að fyrsta lest myndi lenda í Amsterdam klukkan hálf sjö... hálftími til að hlaupa í gegnum Schipol með fullt af töskum þótti okkur mjög hæpið þannig að við hringdum í teinótta marokkóbúan okkar og hann kom að vörmu spori.

Það var samt smá stress í gangi að vera að fara með leigubíl milli landa en við róuðumst þegar bílstjórinn spurði hvort að konan hans mætti ekki koma með. Hann sagði að hún gæti þá tekið við á heimleiðinni ef hann væri orðinn þreyttur því hann væri búinn að vera á vakt í 14 tíma. Þetta reyndist ágætis fólk og þau skiluðu okkur heilum á Schipol og þaðan flugum við svo til Búlgaríu.

Þegar við komum til Búlgaríu vorum við spurð af fjórum gaurum hvort að okkur vantaði far en það eru bílstjórar sem eru ólöglegir þannig að við fundum okkur "OK Taxi" sem eru löggildir leigubílar. Dóra fékk menningarsjokk þegar við keyrðum í gegnum Sofia út á rútustöð þar sem við keyptum okkur one way ticket til Sevlievo en hún kunni betur við sig í smábænum Sevlievo. Þær tvær vikur sem Dóra var hér í Búlgaríu fórum við í tvær borgir og skoðuðum ýmislegt skemmtilegt. Á daginn vorum við á Youth centerinu og á kvöldin með vinum okkar. Tvem dögum áður en Dóra flaug heim fórum við svo til Sofia og þræddum verslunargöturnar þar.

Ég set inn myndir frá dvöl Dóru hérna fljótlega en það er svolítið mikið að gera þannig að það gæti orðið smá bið.

--------------------------------------------------